Kæru félagar,

þá er mótaskráin fyrir árið 2015 tilbúin og komin á golf.is. Eftirfarandi atriði er vert að minnast sérstaklega á:

  • Meistaramótið er viku fyrr á ferðinni eða 28. júní til 4. júlí.
  • Við verðum með þá nýjung að halda hjóna- og parakeppni í ár. Skemmtilegt mót sem endar að sjálfsögðu í góðu hófi hjá honum Sigga vert.
  • Við erum að leggja lokahönd á miðvikudagsmót almennra félagsmanna. Það verður punktamót sem hinn almenni félagsmaður tekur þátt í. Yfir árið getur hann spilað mest 10 hringi í mótinu en fimm bestu hringirnir telja … og aftur endum við mótið í skemmtilegu hófi hjá títtnefndum Sigga vert

Sem sagt vorboðinn ljúfi er kominn þetta árið !

Stjórn, starfsfólk og umfram allt mótanefnd GKG