Slide

Starfskraft vantar í ProShop GKG

Við hjá GKG leitum að einstaklingum sem áhuga hafa á að vinna í ProShop GKG sumarið 2015. Starfsmenn ProShop GKG eru andlit klúbbsins gagnvart félagsmönnum og þeim gestum sem spila vellina okkar. Viðkomandi þarf því að hafa góða þjónustulund og vera tilbúinn til að gera upplifun þeirra sem sækja okkur […]

Nýjung – punktamót GKG – keppt á öllum mánudögum í sumar – skráning hafin

Punktamót GKG er nýtt innanfélagsmót fyrir alla félagsmenn. Í Punktamóti GKG á hinn almenni kylfingur góða möguleika á því að hljóta titilinn Punktameistari GKG. Hér eiga því kylfingar jafnan möguleika á sigri, óháð kyni, aldri eða forgjöf.

Árið 2015 verður spilað á mánudögum og stendur mótið yfir stóran hluta sumarsins. […]

Golfsumarið 2015 á næsta leiti

Jæja kæru félagar, nú er allt að gera sig!!

Snúum okkur fyrst að máli málanna sem er völlurinn okkar.

Hann kemur flottur undan vetri, búið er að kantskera allar glompur, verið er að keyra í þær sand og jafna út. Búið er að valta flatirnar sem koma mjög vel undan vetri. Á […]

Úrslit í næst seinasta púttmóti vetrarins

Sjötta mótið af sjö púttmótum vetrarins var haldið s.l. laugardag. Alls tóku 25 krakkar þátt í mótinu og er hægt að sjá árangur þriggja bestu í hverjum flokki hér fyrir neðan. Til að sjá úrslit allra keppenda smellið hér.

Við þökkum öllum fyrir þátttökuna og minnum á seinasta mótið sem fer fram […]

Bergur Konráðs fór holu í höggi á La Sella

Bergur Konráðsson, landskunnur Kírópraktor og meðlimur í GKG, gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á fyrstu braut græna vallarins á La Sella á Spáni. Bergur var þarna í foreldrahópi afrekskylfinga klúbbsins og náði draumahögginu á casino þessari erfiðu braut með 3-járni. Höggið var slegið af […]

Góð mæting og stemmning á fríu námskeiði hjá GKG

Síðastliðinn laugardag fór fram golfkynning í Kórnum á vegum GKG og var börnum 7-11 ára boðið á frítt námskeið þar sem áherslurnar voru skemmtilegar golfþrautir með SNAG og venjulegum kylfum, auk annarar hreyfingar. GKG hefur staðið fyrir þessum námskeiðum í vetur annan hvern laugardag frá því í byrjun febrúar. Námskeiðin […]

Frítt á SNAG golfnámskeið í Kórnum fyrir 7-11 ára

GKG býður 7-11 ára börnum á ókeypis námskeið í æfingaaðstöðu GKG í Kórnum á laugardag n.k. Mæting er kl. 10 og stendur námskeiðið til kl. 10:50. Notast verður við SNAG golfbúnaðinn, sem og venjulegar kylfur. Námskeiðið verður í leikjaformi þar sem blandað verður golfæfingum og annari hreyfingu.

Allur búnaður er á staðnum.

Þetta […]

Hilmar Viggósson færir GKG golfbíl að gjöf

Íþróttafélögin væru hvorki fugl né fiskur ef ekki væri fyrir hið öfluga starf sjálfboðaliða og velgjörðarmanna. Einn slíkur, Hilmar Viggósson koma færandi hendi til okkar GKG-inga og gaf klúbbinum nýjan golfbíl að gerðinni Excar sem er að sömu tegund og hefur verið í notkun hjá GKG.

Færum við Hilmari okkar bestu […]

By |11.04.2015|Categories: Fréttir|

Úrslit í páskapúttmóti barna og unglingastarfs GKG

Fimmta mót af sjö púttmótum vetrarins var haldið s.l. laugardag. Í tilefni þess að páskar eru á næsta leiti var sérstakt páskaþema, en gómsæt páskaegg frá Góu voru í verðlaun fyrir 3 efstu sæti í hverjum flokki. Auk þess var nammií boði  fyrir alla keppendur. Alls tóku 36 krakkar þátt í […]

Ólafur Loftsson gengur til liðs við GKG

Ólafur Loftsson hefur ákveðið að ganga til liðs við okkur GKG-inga. Þessa ákvörðun tók hann eftir vel ígrundaða umhugsun. Í yfirlýsingu sem Ólafur sendi frá sér á þessum tímamótum segist hann hafa spilað allan sinn feril fyrir hönd Nesklúbbsins og eigi óteljandi minningar af Nesvellinum. Tekur hann skýrt fram að hann […]

Go to Top