Jæja kæru félagar, nú er allt að gera sig!!
Snúum okkur fyrst að máli málanna sem er völlurinn okkar.
Hann kemur flottur undan vetri, búið er að kantskera allar glompur, verið er að keyra í þær sand og jafna út. Búið er að valta flatirnar sem koma mjög vel undan vetri. Á næstu dögum munu svo vallarstarfsmenn valta brautirnar og jafna frostfyllingar … allt gert til að þetta verði rennislétt fyrir ykkur kylfingana. Nú veltur það aðeins á veðrinu hvenær við opnum nákvæmlega … en … við stefnum að opnunni fljótlega eftir mánaðarmótin.
Og svo er það hitt mál málanna, framkvæmdirnar.
Búið er að afmarka vinnusvæðið innan girðingar og munu þær ekki trufla okkur í sumar. GG Verk er að slá upp fyrir sökklum og miðar allt samkvæmt áætlunum. Við erum á síðasta snúning við að ganga frá allri bráðabirgðaaðstöðu sem verður hin glæsilegasta og spyrjum við okkur núna þegar allt er að koma í ljós af hverju við gerðum þetta ekki fyrr. Siggi vert verður með betri aðstöðu en hann hefur nokkurn tíman haft til að elda ofan í okkur. Í gámabyggingu sem við erum búin að setja upp verður aðstaða fyrir 45 manns í sæti. Að auki verðum við með tjald tengt við gámana sem mun rúma 90 manns í sæti. Verið er að helluleggja í kringum gámana, gervigras verður sett undir tjaldið og munum við gera verönd sem hægt er að baða sig í sumarsólinni fyrir og eftir hring … í rjómablíðunni sem mun einkenna golfsumarið 2015 😉
Átjánda brautin verður styttri í ár þar sem við erum að endurgera flötina. Við færðum gömlu flötina í heild sinni þannig að hún verður rúmir 210 metrar af gulum. Rótarlag verður nú keyrt yfir flötina og brautina sem verið er að slétta, hún mótuð endanlega og sáð í þannig að hún verður iðagræn á næstu vikum. Fjárfestum við í dúk sem við setjum yfir nýju flötina sem flýta á grasvexti. Þá verður stígurinn sem liggur meðfram nýju íþróttamiðstöðinni malbikaður. Nýja bílastæðið verður jafnframt malbikað og málað … allt gert til að tryggja það að upplifun ykkar af því að spila vellina okkar verði sem mest og framkvæmdirnar trufli sem minnst … og við stefnum á að klára allt þetta fyrir opnun.
Það stefnir sem sagt í spennandi ár fyrir okkur GKG-inga og allt að smella hjá okkur fyrir sumarið!
Bestu kveðjur,
Staffið.