Aðalfundur PGA á Íslandi, sem eru samtök atvinnukylfinga, fór fram á laugardag í höfuðstöðvum ÍSÍ.

Á fundinum var kennari ársins valinn og hlaut afreksþjálfari GKG, Derrick Moore, þennan mikla heiður.

Derrick hlýtur viðurkenninguna í annað sinn, en hér fyrir neðan má sjá lista yfir kennara ársins frá upphafi.

Við óskum Derrick innilega til hamingju með þessa miklu viðurkenningu!

 

Kennarar ársins frá upphafi
2007  Árni Jónsson
2008 Staffan Johanson
2009 Arnar Már Ólafsson
2010 Brynjar Eldon Geirsson
2011  Derrick Moore
2012 Sigurpáll Geir Sveinsson
2013 Magnús Birgisson
2014 Heiðar Davíð Bragason
2015 Derrick Moore