Guðmundur Oddsson, fráfarandi formaður GKG, veitti Elísabetu Ágústsdóttur Háttvísibikar GSÍ, sem veittur er þeim unga kylfingi sem sýnt hefur góða frammistöðu utan vallar sem innan, og verið öðrum til fyrirmyndar hvað varðar dugnað og háttvísi.

Bikarinn var veittur í fyrsta sinn í fyrra, og fékk þá Aron Snær Júlíusson þessa miklu viðurkenningu.

Helstu afrek Elísabetar á árinu 2015
– Náði best öðru sæti og að auki tvisvar sinnum í þriðja sæti á Íslandsbankamótaröðinni
– Sigraði í Meistaramóti GKG í 1. flokki kvenna
– Lækkaði forgjöfina úr tæplega 11 niður í 5,5
– Fékk viðurkenningu fyrir mestar framfarir á árinu 2015
– Var í kvennasveit GKG sem hafnaði í 3. sæti í Sveitakeppni GSÍ

Auk þessa er Elísabet frábær fyrirmynd yngri sem eldri kylfinga. Hún hefur sýnt mikinn dugnað við æfingar og hefur það skilað miklum framförum hjá henni. Hún er góður liðssmaður, kemur ávallt vel fram og fylgir þeim golf- og siðareglum sem við förum eftir í golfi.

Við óskum Elísabetu innilega til hamingju með viðurkenninguna.