Á morgun hefjast Evrópumót landsliða, en U18 piltalandsliðið keppir á Osló golfvellinum í Noregi. Karlalandsliðið keppir á Linna golfvellinum í Finnlandi, og kvennalandsliðið í Bled í Slóveníu.
GKG á þrjá kylfinga í piltaliðinu, þá Aron Snæ Júlíusson, Egil Ragnar Gunnarsson og Kristófer Orra Þórðarson. Í karlaliðinu er Ragnar Már Garðarsson, en því miður eigum við ekki kylfing að þessu sinni í kvennalandsliðinu.
Gaman verður að fylgjast með landsliðunum næstu fimm daga, en nánari upplýsingar um mótin er að finna hér.
Efri röð frá hægri: Henning Darri Þórðarson GK, Birgir Björn Magnússon GK, Aron Snær Júlíusson GKG, Egill Ragnar Gunnarsson GKG. Neðri röð: Ragnar Ólafsson liðsstjóri, Fannar Ingi Steingrímsson GHG, Kristófer Orri Þórðarson GKG, Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari
Áfram Ísland!