Sigurður Arnar Garðarsson og Elísabet Ágústsdóttir úr GKG hafa verið að keppa ásamt öðrum íslenskum krökkum í Skotlandi undanfarna daga á US Kids Evrópumótinu og stóðu sig mjög vel.

Elísabet hafnaði í 2. sæti, en Ólöf María Einarsdóttir úr GHD sigraði í þeirra flokki, 15-18 ára stúlkna. Sigurður Arnar keppti í flokki 13 ára og hafnaði í 14. sæti, en hann fékk einnig á Van Horn Cup á morgun en efstu tveir frá Evrópu og efstu tveir frá “the rest of the world” komast áfram í hverjum aldurshópi.

Arnór Snær Guðmundsson úr GHD hafnaði í 2. sæti og keppir á morgun í Van Horn Cup.

Einnig kepptu á mótinu Kristófer Karl Karlsson úr GM og Kjartan Guðmundsson úr NK.

Þetta er góð og skemmtileg reynsla fyrir krakkana að keppa á alþjóðlegu móti á góðum golfvöllum. Það blæs víðar en á Íslandi, en mikill vindur var alla dagana í Skotlandi, ekta links golf.

Hægt er að skoða úrslit og skor nánar í hverjum flokki með því að smella hér.

Mynd: Sigurður og Elísabet