Kæru félagar,
Við höfum fengið töluvert af fyrirspurnum frá félagsmönnum varðandi ástand flatanna hjá okkur. Ástæðan er sú að í flötunum er gróft gras sem sumir vilja meina að sé snarrót.
Er Snarrót í flötunum?
Því fer fjarri að snarrót sé að sá sér í flatirnar okkar. Gula grófa grasið kallast Poa Annua (Varpasveifsgras) og er einær grastegund sem sáir sér sjálf. Aðaluppstaðan í flötunum hjá GKG er hins vegar grastegund sem heitir Túnvingull. Poa Annua er mjög gróf grastegund sem margir hafa notað sem ýlustrá, Túnvingullinn er hins vegar mun fíngerðari, ef hann nær að vaxa verður hann að fíngerðu puntstrái.
Af hverju er magn Poa að aukast í flötunum?
Flatirnar hjá okkur voru nánast lausar við Poa en eftir frostaveturna miklu 2013 og 2014 jókst magn Poa. Ástæðan er sú að Poa sækir inn á svæði sem eru veik fyrir eins og til dæmis boltaför og eftir frostaveturna var tækifæri fyrir Poa að vinna sér svæði. Kjöraðstæður fyrir Poa er raki og þrífst hún best þegar næg næring hefur verið í boði. Yfirleitt deyr Poa plantan á veturna en í ljósi þess að veturinn var mildur í ár lifði hún af veturinn. Í vor hefur verið mikil væta þannig að í framhaldi af frostlausum vetri hafa verið kjöraðstæður fyrir Poa.
Af hverju eru nágrannavellirnir okkar ekki með sama vandamál?
Nágrannavellirnir okkar eru líka að fást við Poa vandamál og í raun er hlutfall Poa hjá GKG með því lægsta sem gerist á Reykjavíkursvæðinu. Ástæðan fyrir því að meira ber á Poa hjá okkur en annarsstaðar er sú að meginuppistaða flatanna er Túnvingullinn sem er mun fíngerðari planta. Það hjálpar heldur ekki til að nú er plantan að frjóvga sér og því ber meira á henni en ella.
Af hverju látum við ekki Poa verða okkar aðalgrastegund?
Túnvingullinn mjög harðgerð planta sem þolir frost, þurrk og næringarleysi mjög vel. Poan er einær planta og væri það glapræði að treysta á hana sem meginundirstöðu flata hjá GKG. Eftir næsta frostavetur þyrfti ekki að spyrja að leikslokum. Auk þess er mun auðveldara að ná upp hraða á flötum sem hafa Túnvingul en á flötum sem hafa grófari grastegundir.
Hvað er hægt að gera?
Vallarstarfsmenn GKG eru búnir að leggja mikla vinnu í flatirnar í vor. Í maí var byrjað á því að skera flatirnar, sá og sanda og í byrjun júní var fíngatað, sáð og sandað. Það má því segja að búið sé að beita öllum tiltækum ráðum til að snúa þessari þróun við. Nú í framhaldinu þurfum við að fá náttúruöflin í lið með okkur með þurrk og hita til að Túnvingullinn nái sér á strik. Við erum því að eiga við tímabilsástand og með þeim aðgerðum sem við höfum gripið nú þegar til erum við sannfærð um að flatirnar munu skarta sínu fegursta innan skamms.
Með bestu kveðju,
Vallarstjóri