Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar fékk endurnýjun viðurkenningar félagsins sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ laugardaginn 9. apríl síðastliðinn.  Þann dag fékk félagið einnig afhenta nýja og glæsilega aðstöðu við Vífilsstaði í Garðabæ.  Það var Lárus Blöndal forseti ÍSÍ sem afhenti formanni félagsins Finni Sveinbjörnssyni viðurkenninguna.  Á myndinni eru frá vinstri þeir Lárus og Finnur ásamt ungum golfiðkendum í GKG með fána fyrirmyndarfélaga ÍSÍ.

Tekið af heimasíðu ÍSÍ

Nánari upplýsingar um Fyrirmyndarfélag ÍSÍ er að finna hér.

Á mynd frá vinstri: Gústav Nilsson 12 ára, Lárus Blöndal forseti ÍSÍ, Bjarney Harðardóttir 11 ára og Finnur Sveinbjörnsson formaður GKG

Mynd: Valdimar Kristófersson, Garðapóstinum.