Þjálfarar og liðsstjórar GKG hafa valið sveitir félagsins sem keppa í Íslandsmóti golfklúbba, sem hefst núna á föstudag. Karlarnir keppa í GR á Korpúlfsstaðavelli, en konurnar leika hér á heimavelli.

A sveit kvenna skipa
Alma Rún Ragnarsdóttir
Elísabet Ágústsdóttir
Freydís Eiríksdóttir
Hulda Clara Gestsdóttir
Ingunn Einarsdóttir
Ingunn Gunnarsdóttir
Ragna Björk Ólafsdóttir
Særós Eva Óskarsdóttir

Liðsstjóri: Hansína Þorkelsdóttir

A sveit karla skipa
Alfreð Brynjar Kristinsson
Ari Magnússon
Aron Snær Júlíusson
Birgir Leifur Hafþórsson
Egill Ragnar Gunnarsson
Emil Þór Ragnarsson
Ólafur Björn Loftsson
Ragnar Már Garðarsson

Liðsstjóri: Birgir Leifur Hafþórsson

Karlasveitin hefur hampað Íslandsmeistaratitilinum fjórum sinnum, en undanfarin þrjú ár verið í 2. sæti. Kvennaliðið hefur sigrað einu sinni, en það var árið 2013.

Áfram GKG!