Kæru félagar,

Þá er síðasti dagur þessa Meistaramóts runninn upp. Við búumst við síðustu hollum i hús um 18:50. Um leið og úrslit liggja fyrir förum við í verðlaunaafhendingu eða um 19:10. Það væri því gaman ef veislugestir væru tímanlega og tækju á móti meistaraflokkskylfingunum á 18. flöt, búum til góða stemningu á svölunum … hver veit nema við fáum að upplifa bráðabana. Meistaraflokkskylfingar geta nýtt búningsherbergin til að koma sér í sparigallann fyrir verðlaunaafhendingu þannig að verðlaunaafhendingin geti hafist sem fyrst. Strax að aflokinni verðlaunaafhendingu verður farið í myndatöku. Að aflokinni myndatöku gæðum við okkur á eðalnautasteik og skemmtum hvort öðru fram eftir kvöldi.

Miðar á kvöldverðinn kosta kr. 3.900,-, þau í Mulligan selja miðana, athugið að til að tryggja sér miða er lykillinn að vera tímanlega.

Hlökkum til að sjá ykkur í kvöld,

Mótanefnd GKG, staffið og stjórn.