Heimsókn GKGkvenna til GOkvenna þriðjudaginn 12. júní nk. og heimsókn GOkvenna til GKGkvenna þriðjudaginn 19. júní nk.

 

Um er að ræða tveggja daga vinkvennakeppni milli golfklúbbanna. Sá klúbbur sem fær flesta samanlagða punkta þessa tvo daga vinnur og verður miðað við 10 punktahæstu konur hvorn dag úr hvorum klúbbi. Hámarks forgjöf er 36. Einnig verða veittar viðurkenningar til þriggja kvenna sem verða með samanlagða flesta punkta þessa tvo daga og einnig fær sú kona viðurkenningu sem verður með lægsta samanlagða skorið báða dagana.

 

Þriðjudaginn 12. júní nk. heimsækja GKGkonur konur í GO á Urriðavöll. Spilaðar verða 18 holur og er vallargjaldið kr. 3.000 fyrir GKGkonur. Skráningu lýkur mánudaginn 11. júní. Skráning fer fram á golf.is, GO/GKG Kvennamót.

 

Þriðjudaginn 19. júní nk. heimsækja GOkonur konur í GKG á Vífilsstaðavöll. Spilaðar verða 18 holur á Leirdalnum og er vallargjaldið kr. 3.000 fyrir GOkonur. Skráningu lýkur mánudaginn 18. júní nk. Skráning fer fram á golf.is, GKG/GO Kvennamót.

 

Stefnt verður að því að saman leiki í holli tvær konur frá GO og tvær konur frá GKG. Í mótslok 19. júní nk. verða afhentar viðurkenningar.

 

Óski konur eftir því fá súpu og brauð við leikslok hvorn dag skulu þær geta þess sérstaklega við komu í veitingasalinn og greiða sérstaklega fyrir.

 

Kvennanefndir GKG og GO.