Mótið er fjórða og síðasta þriðjudagsmótið okkar í sumar á Mýrinni. Punktamót, hámarks forgjöf 36 og veitt verða Freixenet verðlaun fyrir þrjú efstu sætin og nándarverðlaun á par þrjú holum.
Miss Freixenet bleik og bling verður krýnd og hvetjum við konur til að koma vel bleikar og blingaðar í mótið.
Ekkert gjald er í mótið en hver kona þarf að koma með pakka að verðmæti 1.500 – 2.000 kr. sem úthlutað verður eftir ákveðnum reglum um kvöldið.
Verðlaunaafhending verður á Mulligan um kl. 21.00, sem verður að sjálfsögðu með tilboð á einhverju gómsætu fyrir okkur.
Skráning er á golf.is og opnað fyrir skráningu miðvikudaginn 24. ágúst. Kl. 10.00. Rástímar verða frá kl. 16.00 – 18.30.
Næst á dagskrá kvennanefndar;
11. september TARAMAR lokamót GKG kvenna á Leirdal
Mótið er punktamót hámarks forgjöf 36. Verðalaunaafhending verður á lokahófinu á Mulligan. Skráning hefst á golf.is 1. september kl. 10.00
16. september LOKAHÓF TARAMAR GKG kvenna á Mulligan kl. 19.00
Allar nánari upplýsingar verða sendar út síðar.
F.h. TARAMAR kvennanefndar GKG
Þorgerður Jóhannsdóttir.