María Eir og Böðvar Bragi tryggðu sér Nettóbikarinn!

Annað mót tímabilsins á Unglingamótaröð GSÍ fór fram á Leirdalsvelli hjá GKG dagana 10.-12. júní.

Alls tóku 148 keppendur þátt á Nettó mótinu sem var haldið í annað sinn hjá GKG.

Heildarúrslit mótsins má sjá hér

Mótið fór mjög vel fram, en óhætt er að segja að veðrið hafi verið alls konar.  

Tveir elstu keppnishóparnir hófu leik á fimmtudag og léku 54 holur. Sérstök keppni um Nettóbikarinn var leikin í elstu flokkunum, og sigruðu María Eir Guðjónsdóttir GM og Böðvar Bragi Pálsson GR, en þau voru á lægsta skori stúlku og pilts í 54 holu höggleiknum.

Aðrir keppnishópar léku 36 holur á tveimur keppnisdögum, föstudag og laugardag. Einnig var Nettó Áskorendamótið leikið á föstudag, fréttir og úrslit er að finna hér.

Lokahóf var haldið fyrir keppendur þar sem boðið var upp á veitingar, veitt nándarverðlaun og dregið úr skorkortum. Atvinnumaðurinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson aðstoðaði við verðlaunaafhendinguna.

14 ára og yngri telpur
1  Fjóla Margrét Viðarsdóttir GS 163 högg
2  Auður Bergrún Snorradóttir GA 174
T3  Eva Kristinsdóttir GM 181
T3  Pamela Ósk Hjaltadóttir GR 181

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

14 ára og yngri drengir
1  Markús Marelsson GK 155
2  Hjalti Jóhannsson GK 160
3  Gunnar Þór Heimisson GKG 162

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

15-16 ára stúlkur
1  Perla Sól Sigurbrandsdóttir GR 150
2  Helga Signý Pálsdóttir GR 160
3  Berglind Erla Baldursdóttir GM 162

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

15 – 16 ára drengir
1  Gunnlaugur Árni Sveinsson GKG 153 högg
2  Skúli Gunnar Ágústsson GA 154 högg
3  Veigar Heiðarsson GA 156 högg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

17 – 18 ára stúlkur
1  María Eir Guðjónsdóttir GM 236
2  Katrín Sól Davíðsdóttir GM 247
3 Katrín Hörn Daníelsdóttir GKG 255

17 – 18 ára piltar
1  Böðvar Bragi Pálsson GR 218 högg
2  Björn Viktor Viktorsson, GM 226 högg
T3  Aron Ingi Hákonarson GM 229 högg
T3  Bjarni Þór Lúðvíksson GR 229 högg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

19-21 árs stúlkur
1  Marianna Ulrikssen GK 271
2  Vala Guðlaug Dolan Jónsdóttir GOS 324

 

19-21 árs piltar
1 Lárus Ingi Antonsson GA 220
2  Hjalti Hlíðberg Jónasson GKG 224
3 Tómas Eiríksson Hjaltested GR 225

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Nettómeistarar 2021: Böðvar Bragi Pálsson og María Eir Guðjónsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

GKG þakkar stuðningsaðila mótsins, Nettó, öllum keppendum og ekki síst sjálfboðaliðum sem gerðu þetta mót hið glæsilegasta.

 

Share This Story, Choose Your Platform!

Go to Top