Minningarmót til styrktar íþrótta og afrekssviði GKG verður haldið á Leirdalsvelli GKG laugardaginn 6. september.

Mótið er haldið til minningar um fráfallna félaga okkar í GKG.

Síðustu ár hefur afreks- og íþróttastarf GKG gengið frábærlega. Afrakstur þessa starfs eru margir titlar og fjöldi öflugra kylfinga. Árið 2014 var engin undantekning, Íslandsmeistaratitlunum rigndi inn og má þar helst nefna glæsilegan sigur Birgis Leifs Hafþórssonar á Íslandsmótinu í golfi sem var haldið í fyrsta sinn á Leirdalsvelli GKG.  Minningarmótið er stór liður fjáröflunar fyrir þetta góða starf.

Í mótinu höldum við sérstaklega uppi minningu þeirra Jóns Ólafssonar og Ólafs E. Ólafssonnar, sem báðir létust óvænt og skyndilega í blóma lífsins. Báðir áttu drjúgan þátt í að gera GKG að því sem klúbburinn er í dag.

Jón Ólafsson

Jón fæddist 15. maí 1947 og lést 19. júní 2008.

Hann sat í stjórn GKG 2000-2006 og var formaður afreksnefndar öll 7 árin. Hann var liðsstjóri sveitar GKG í fyrstu deild karla þegar sveitin varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn árið 2004. Þá var hann fyrirliði og keppandi í sveit GKG í öldungasveitarkeppni GSÍ um árabil.

Jón tók við formennsku í LEK, Landssambandi eldri kylfinga nokkrum mánuðum áður en hann féll frá.

Ólafur EÓlafsson

Ólafur fæddist 6. mars 1958 og lést 17. maí 2012.

Hann sat í stjórn klúbbsins 2003-2004 og sinnti einkum markaðs-, kynningar- og fjáröflunarmálum.

Ólafur varð framkvæmdastjóri GKG frá haustinu 2007. Hann lést er hann var við golfleik á 15. flöt Leirdalsvallar. Ólafur fékk hjartaáfall og báru endurlífgunartilraunir ekki árangur. Ólafur var aðeins 53 ára.

Mótið er punktakeppni með forgjöf. Hámarksforgjöf karla er 24 og hámarksforgjöf kvenna er 28. Einnig eru veitt verðlaun fyrir besta skor án forgjafar.

Í mótinu mega þátttakendur leika af aftari teigum og breytist leikforgjöf í samræmi við það. Leikmenn verða að tilkynna slíkt áður en leikur hefst.

Glæsileg verðlaun verða í mótinu fyrir efstu sætin í punktakeppni og efstu sætin í höggleik.

Verðlaunalistinn er ennþá í vinnslu en uppfærist seinna í dag.

Punktakeppni:

1. sæti

Flugmiði til áfangastaðar að eigin vali í Evrópu frá Icelandair

10.000 króna inneign frá N1

Glaðningur frá Ölgerðinni

2. sæti 

Öryggisskápur frá Optima

10.000 króna inneign frá N1

Glaðningur frá Ölgerðinni

3. sæti

10.000 króna inneign frá N1

Glaðningur frá Ölgerðinni

Höggleikur án forgjafar

1. sæti

20.000 króna inneign frá N1

Cleaveland 56° Wedge frá Erninum

Glaðningur frá Ölgerðinni

Nándarverðlaun á öllum par 3 brautum.

– Ostakarfa frá MS og Léttvínsflaska frá Ölgerðinni

Blikkás-Funi gefur þeim einstakling sem fer holu í höggi Sánubaðstunni að andvirði 1.000.000 kr.-

Dregið verður úr skorkortum við verðlaunaafhendinguna, þeir sem eru dregnir út verða að vera á staðnum til að hljóta vinninginn.

Verð í mótið er kr. 5.000 og rennur mótsgjald óskipt til íþrótta, afreks og unglingamála GKG.

Ath. Leikmenn verða að hafa virka forgjöf til að geta unnið til verðlauna