Hlöðver Guðnason, PGA golfkennari og meðlimur í GKG verður með námskeið í Kórnum sem hefjast 15. mars. Annars vegar eru hópnámskeið þar sem hámark 5 manns eru í hópi og lögð er áhersla á markvissa kennslu.
Hér fyrir neðan má sjá yfirlit fyrir námskeiðin sem eru í boði, en skráningarupplýsingar má sjá hér fyrir neðan. Námskeiðin eru blönduð kk og kvk:
Námskeið mið 15.3 – 22.3- 29.3 – 1.4 – fjögur skipti (sveifla og stutta spil) kr. 12.500
Námskeið fim 16.3 – 23.3- 30.3 – 2.4 – fjögur skipti (sveifla og stutta spil) kr. 12.500
Kl. kl 18-19 eða 19-20
Athugið að seinasti tíminn fer fram á laugardegi/sunnudegi (1./2.4), kl. 10-11 og 11-12.
Á námskeiðunum er lögð áhersla á grunnatriðin og góðar æfingar fyrir hvern hluta leiksins. Þar sem hópastærð er takmörkuð við fimm manns þá fær hver og einn persónulega nálgun.
Námskeiðin fara fram í æfingaaðstöðu GKG í Kórnum.
Nánari upplýsingar gefur undirritaður, hægt er skrá sig með því að fylla út eftirfarandi upplýsingar og senda á ulfar@gkg.is
Skráning á námskeið á …. kl.
Nafn:
Kt.:
Netfang:
GSM:
Forgjöf:
Fyrir kylfinga sem óska eftir einka/parakennslu bendum við á kennara okkar Sigurpál Geir Sveinsson. Best að hafa samband við hann beint upp á tímapantanir, sigurpall@gkg.is eða 8620118.
Úlfar Jónsson
Íþróttastjóri GKG
ulfar@gkg.is
8629204