Námskeiðin í maí voru vel sótt og nú bjóðum við upp á ný námskeið sem hefjast í vikunni 6.-9. júní. Námskeiðin henta breiðum hópi kylfinga, allt frá byrjendum til lengra komna. Námskeiðin eru opin öllum, ekki einungis félagsmönnum GKG. Hópastærð er takmörkuð við 5 manns þannig að hver og einn fær persónulega nálgun.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit fyrir námskeiðin sem eru í boði í júní, en skráning fer fram með því að senda tölvupóst á ulfar@gkg.is. Námskeiðin eru blönduð kk og kvk:

Almennt námskeið – áhersla á pútt, vipp og löng högg.
6., 13., 20. júní Hópur 1 kl 18-19
6., 13., 20. júní Hópur 2 kl 19-20
6., 13., 20. júní Hópur 3 kl 20-21
Hámarksfjöldi 5 manns per hóp. Verð kr. 7.500 per nemanda

Almennt námskeið – áhersla á pútt, vipp og löng högg.
7., 14., 21. júní Hópur 1 kl 18-19
7., 14., 21. júní Hópur 2 kl 19-20
7., 14., 21. júní Hópur 3 kl 20-21
Hámarksfjöldi 5 manns per hóp. Verð kr. 7.500 per nemanda

Stutta spils námskeið – áhersla á pútt, vipp/pitch og glompuhögg
8., 15., 22. júní Hópur 1 kl 18-19
8., 15., 22. júní Hópur 2 kl 19-20
8., 15., 22. júní Hópur 3 kl 20-21
Hámarksfjöldi 5 manns per hóp. Verð kr. 7.500 per nemanda

Löng högg/teighögg – áhersla á hybrid og “trékylfur” og teighögg.
9., 16., 23. júní Hópur 1 kl 18-19
9., 16., 23. júní Hópur 2 kl 19-20
9., 16., 23. júní Hópur 3 kl 20-21
Hámarksfjöldi 5 manns per hóp. Verð kr. 7.500 per nemanda

Kennari er Hlöðver Guðnason, PGA golfkennari og GKG meðlimur (hlodverg@simnet.is / 861 1407).

Greitt skal áður en námskeið hefst.

Greiðsluupplýsingar GKG: Banki 0318 – 26 – 176, kt. 650394-2089
Skýring: v/námskeið og nafn.   Senda kvittun á ulfar@gkg.is

Kennsla og æfingaboltar eru innifalnir. Kennslan fer fram á æfingasvæðum GKG, mæting ávallt við pallana við áhaldahúsið. Ef veður er mjög óhagstætt þá er hægt að leita skjóls í nýrri og glæsilegri inniæfingaaðstöðu félagsins.

Nánari upplýsingar gefur undirritaður, en hægt er að skrá sig með því að senda póst á ulfar@gkg.is

Úlfar Jónsson
Íþróttastjóri GKG
ulfar@gkg.is
8629204