Vallarnefnd GKG hefur ákveðið að setja á laggirnar nefnd sem setur saman hugmyndir um framþróun 9 holu vallar GKG.
Mýrin gegnir lykilhlutverki í starfsemi klúbbsins og því meginmarkmiði að vera fjölskylduvænn golfklúbbur. Mýrin er sá völlur sem börn og unglingar byrja á að spila og gegna þá gullteigarnir miklu máli, með þeim hætti gegnir Mýrin jafnframt lykilhlutverki í íþróttastarfi klúbbsins. Nýbyrjendur spila jafnframt Mýrina þar sem Leirdalsvöllur er með forgjafartakmarkanir. Mikið er um það að fjölskyldur mæta og spila saman með börnunum sínum og hjón spila frekar saman á Mýrinni en Leirdalnum. Þá er Mýrin sá völlur sem eldri kylfingar spila gjarnan og er stór hópur af þeim sem spila völlinn allt árið um kring því á veturna er Mýrin opin inn á vetrargrín. Að lokum, þá er Mýrin mikilvægur kostur hins almenna kylfings þegar hann kýs að spila 9 holur.
Nefndin ber að hafa ofangreint í huga þegar vinnur að hugmyndum að framþróun Mýrarinnar.
Þau atriði sem þarf að skoða eru eftirfarandi:
- Staðsetning og gerð teiga með fókus á rauða- og gullteiga
- Staðsetning bekkja með tilliti til framangreinds
- Hugsanlegir vankantar eða breytingar á:
- Brautum
- Flötum
- Forflötum
- Karga
- Glompum
- Vatnstorfærum
- Gróðri
- Öðrum þáttum
- Tvær holur á flöt (venjuleg hola og stærri hola fyrir börn og nýbyrjendur)
- Uppsetning vetrarvallar
- Aðrar nýjungar og hugmyndir sem falla að framangreindri notkun á Mýrinni
Vallarnefnd mun nýta þær hugmyndir sem nefndinn vinnur að til að móta framtíðaruppbyggingu 9 holu vallar GKG. Um leið og sú framtíðarþróun verður kynnt mun GKG fara í nafnabreytingu á Mýrinni og kalla eftir hugmyndum frá félagsmönnum.
Eðli málsins samkvæmt þá fylgir allri framþróun einhverjar fjárfestingar og kostnaður. Vallarnefnd mun áætla kostnað við þær hugmyndir sem koma frá nefndinni. Það er því ekki hlutverk nefndarinnar að spá og spekúlera í fjármögnun verkefnanna. Hlutverkið er fyrst og fremst að koma með góðar hugmyndir og tillögur. Það skal þó tekið fram að ekki skemmir fyrir að hugmyndirnar séu hagsýnar, það eykur líkur á að hægt sé að hrinda þeim í framkvæmd.
Lykildagsetningar eru eftirfarandi:
- Febrúar – nefndin skilar frá sér tillögum
- Mars – vallarnefnd GKG kynnir áform um framtíðarþróun GKG varðandi 9 holu golfvöll
- Mars – hugmyndasamkeppni um nýtt nafn
- Mars – Nýtt nafn á 9. holu golfvöll GKG kynnt
- Dómnefnd er skipuð: Formanni, framkvæmdastjóra, vallarstjóra, formanni vallarnefndar og formanni nefndar um framþróun 9 holu vallar GKG
Nefnd um framþróun 9 holu vallar skal skipuð með eftirfarandi hætti:
- Fulltrúa kvenna
- Fulltrúa eldri kylfinga
- Fulltrúa barna og unglingastjarfs
- Fulltrúa þeirra sem nýta Mýrina með fjölskyldunni
- Fulltrúa úr vallarnefnd
- Fulltrúa PGA kennara GKG
Vallarnefnd mun kalla eftir þátttöku félagsmanna og skipa nefndina. Nefndin skal vera fullskipuð fyrir 1. nóvermber 2014.
Þeir sem áhuga hafa á að starfa í nefndinni sendi tölvupóst á agnar@gkg.is, tilgreinið jafnframt hvern af ofangreindum hópum þið viljið vera fulltrúar fyrir. Vallarnefnd mun svo velja úr umsækjendum aðila í nefndina og tilkynna eigi síðar en fyrstu vikuna í nóvember.
Vallarnefnd GKG