Nú hefur golfvöllurinn Glanni bæst í hóp vinnavallanna okkar og stefnum við því að 12 vinarvöllum þetta árið.

Glanni er staðsettur nálægt Bifröst og er í fallegu umhverfi, umgirtur Grábrókarhrauni, í kjarr – og graslendi. Völlurinn er í rétt rúmlega klukkutíma fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu svo það er lítið mál að skjótast eftir vinnu og taka golfhring eða gera helgarferð vestur þar sem Golfklúbburinn Glanni er í samstarfi við hótel Bifröst þar sem kylfingar geta gist á hótelinu fyrir mjög sanngjarnt gjald, þriggja rétta kvöldverð og morgunverð á hótelinu.
Á myndinni eru þeir Agnar Már Jónsson framkvæmdastjóri GKG og Viðar Þorsteinsson stjórnarmaður GGB