Kæru félagar, við höfum lent í töluverðum vandamálum með golf.is í þessu meistaramóti. Nú náum við ekki að koma inn 3. flokki karla og þurfum væntanlega að leggja í vinnu við það á morgun. Þess vegna gætu rástímarnir á golf.is horfið tímabundið. Hér að neðan er pdf skjal með öllum rástímum fram að þriðja flokki.

Rástímar þriðji dagur án þriðja flokks -> Rástímar þriðji dagur án þriðja flokks

Varðandi keppendur í þriðja flokki, þá eru áætlaðir rástímar milli kl. 16:00 og 18:00. Rástímarnir verða birtir í síðasta lagi kl. 11:00 hér á þessari síðu, vonandi næst að laga golf.is fyrir þann tíma.

Við biðjumst velvirðingar á þessum óþægindum.

Mótsstjórn