Staðarreglur hafa verið uppfærðar og eru helstu breytingar þær að hreyfingar eru ekki lengur leyfðar á flötum. Undanþága var veitt fyrir hreyfingar sem nema 15 sentimetrum að hámarki á almenna svæðinu sem er snöggslegið í brautarhæð eða neðar

Sjá staðarreglur fyrir Leirdalsvöll hér.
Sjá staðarreglur fyrir Mýrina hér.

Við höfum vanist því að leika golf með færslum á brautum og flötum þegar ástand valla er ekki eins og best verður á kosið, enda þekkjum við að ýmis svæði eru blaut lengi vel og veturinn fer oftast ekki blíðum höndum um grasið. 

Nú hefur GSÍ sett í gildi reglugerð sem heimilar ekki leikna hringi til forgjafar frá 1. júní til 15. október þegar um hreyfingar á flötum er að ræða. Hægt er að fá tímabundna undanþágu til hreyfinga á almenna svæðinu sem er snöggslegið í brautarhæð eða neðar. Veitt hefur verið undanþága fyrir færslu um 15 sentimetra á okkar völlum.

Sjá tilkynningu frá GSÍ hér.

Sjá reglugerðina hér.

Alþjóðadómarinn og GKG-ingurinn Bergsveinn Þórarinsson kynnti reglugerðina í myndbandinu hér.