Nú hafa tvö mót farið fram í púttmótaröð barna og unglinga GKG, en mótin eru leikin annan hvern laugardag. Þátttakan var mjög góð, en 38 krakkar tóku þátt. Alls verða 9 mót í vetur, og telja bestu 4 mótin í heildarkeppninni, en veitt verða einnig verðlaun fyrir bestu mætinguna. Hægt er að sjá árangur þriggja bestu í hverjum flokki hér fyrir neðan, en til að sjá úrslit allra keppenda smellið hér.

Við þökkum öllum fyrir þátttökuna og minnum á næsta mót sem fer fram laugardaginn  6. febrúar í Kórnum. Hægt er að hefja leik milli 11-12:45 og er þátttaka ávallt ókeypis.

12 ára og yngri stelpur 04 og síðar 23.jan
Bjarney Ósk 35
Elísabet Sunna Scheving 38
Sigríður Embla 38

12 ára og yngri strákar 04 og síðar 23.jan
Róbert Leó 30
Dagur Fannar 31
Sindri Snær

13-16 ára stelpur 03-00 23.jan
Alma Rún 26
Karen Sif 27
Hulda Clara 27

13-16 ára strákar 03-00 23.jan
Sigurður Arnar 25
Viktor Snær 28
Magnús Friðrik 28
Viktor Klinger 28

17 ára og eldri strákar 99 og fyrr 23.jan
Jóel Gauti 26
Sólon Baldvin 29
Gunnar Blöndahl 28