Í gær lauk öðru mótinu af sex í Egils Kristals mótaröð GKG. Hér fyrir neðan má sjá nöfn þeirra sem náðu verðlaunasætum, en heildarúrslit eru að finna á www.golf.is.

Ingi Rúnar Birgisson, sem er 14 ára og einn af okkar efnilegustu kylfingum í GKG, fór holu í höggi á 4. braut vallarins! Ingi Rúnar á ekki langt að sækja golfhæfileikana, en pabbi hans er Birgir Leifur Hafþórsson. Ingi Rúnar lék vel á hringnum, var á 74 höggum og hreppti 1. sætið í sínum aldursflokki.

Næsta Kristals mót fer fram 3. júlí og fer skráning fram hér. Lokadagur skráningar er tveimur dögum fyrir mót.

Verðlaun í öllum flokkum voru eftirfarandi:

  1. sæti: Einn bíómiði í Laugarásbíó og 10 æfingafötur
  2. sæti: Einn bíómiði í Laugarásbíó og 7 æfingafötur
  3. sæti: Einn bíómiði í Laugarásbíó og 5 æfingafötur

Verðlaun fyrir besta skor án forgjafar í öllum flokkum: Einn bíómiði í Laugarásbíó

Allir keppendur fengu 3 æfingafötur í teiggjöf.

Hægt er að vitja vinninga í golfverslun GKG. Við óskum vinningshöfum til hamingju með árangurinn og þökkum fyrir þátttökuna.

Úrslit í Móti nr. 2  – Egils Kristals mótaröð
Meistaraflokkur karla
Kylfingur Klúbbur F9 S9 Total
1 Bjarki Freyr Júlíusson * GKG 19 20 39
2 Björgvin Smári Kristjánsson * GKG 13 20 33
3 Daníel Hilmarsson * GKG 17 14 31
Besta skor
1 Bjarki Freyr Júlíusson * GKG 38 37 75
Unglingamótaröð GKG – Strákar 15-18 ára
Kylfingur Klúbbur F9 S9 Total
1 Ásbjörn Freyr Jónsson * GKG 23 18 41
2 Ragnar Áki Ragnarsson * GKG 19 19 38
3 Egill Ragnar Gunnarsson * GKG 19 18 37
Besta skor
1 Egill Ragnar Gunnarsson * GKG 36 37 73
Unglingamótaröð GKG – Strákar 14 ára og yngri
Kylfingur Klúbbur F9 S9 Total
1 Ingi Rúnar Birgisson * GKG 21 18 39
2 Viktor Snær Ívarsson * GKG 23 16 39
3 Magnús Friðrik Helgason * GKG 18 19 37
Besta skor
1 Ingi Rúnar Birgisson * GKG 35 39 74
Unglingamótaröð GKG – Stelpur 14 ára og yngri
Kylfingur Klúbbur F9 S9 Total
1 Íris Mjöll Jóhannesdóttir * GKG 18 15 33
2 Alma Rún Ragnarsdóttir * GKG 12 19 31
3 Hulda Clara Gestsdóttir * GKG 13 18 31
Besta skor
1 Hulda Clara Gestsdóttir * GKG 52 49 101
Unglingamótaröð GKG – Stelpur 15-18 ára
Kylfingur Klúbbur F9 S9 Total
1 Gunnhildur Kristjánsdóttir * GKG 21 14 35
2 Freydís Eiríksdóttir * GKG 17 16 33
Besta skor
1 Gunnhildur Kristjánsdóttir * GKG 36 43 79
Meistaraflokkur kvenna
Kylfingur Klúbbur F9 S9 Total
1 Særós Eva Óskarsdóttir * GKG 22 20 42
2 Helena Kristín Brynjólfsdóttir * GKG 12 19 31
Besta skor
1 Særós Eva Óskarsdóttir * GKG 36 39 75