Í gær lauk fyrsta mótinu af sex í Egils Kristals mótaröð GKG. Hér fyrir neðan má sjá nöfn þeirra sem náðu verðlaunasætum, en heildarúrslit eru að finna á www.golf.is.

Fínasta þátttaka var en um 40 krakkar kepptu. Árangurinn hjá mörgun var mjög góður eins og sjá má, það er greinilegt að vel hefur verið æft í vetur og vor.

Næsta Kristals mót fer fram 24. júní og fer skráning fram hér. Lokadagur skráningar er tveimur dögum fyrir mót.

Verðlaun í öllum flokkum voru eftirfarandi:

  1. sæti: Einn bíómiði í Laugarásbíó og 10 æfingafötur
  2. sæti: Einn bíómiði í Laugarásbíó og 7 æfingafötur
  3. sæti: Einn bíómiði í Laugarásbíó og 5 æfingafötur

Verðlaun fyrir besta skor án forgjafar í öllum flokkum: Einn bíómiði í Laugarásbíó

Allir keppendur fengu 3 æfingafötur og Egils Kristal í teiggjöf.

Hægt er að vitja vinninga í golfverslun GKG. Við óskum vinningshöfum til hamingju með árangurinn og þökkum fyrir þátttökuna.

Meistaraflokkur karla
Punktakeppni Fgj. F9 S9 Samtals
1 Ragnar Már Garðarsson * GKG -1 17 17 34
2 Egill Ragnar Gunnarsson * GKG 3 15 18 33
3 Aron Snær Júlíusson * GKG 0 14 18 32
Besta skor í höggleik
1 Ragnar Már Garðarsson * GKG -1 36 36 72
Unglingamótaröð GKG – Strákar 15-18 ára
Punktakeppni
1 Gunnar Blöndahl Guðmundsson * GKG 9 22 19 41
2 Hilmar Snær Örvarsson * GKG 15 22 17 39
3 Magnús Friðrik Helgason * GKG 9 17 21 38
Besta skor í höggleik
1 Gunnar Blöndahl Guðmundsson * GKG 9 36 39 75
Unglingamótaröð GKG – Strákar 14 ára og yngri
Punktakeppni
1 Viktor Snær Ívarsson * GKG 18 18 22 40
2 Sigurður Arnar Garðarsson * GKG 2 17 20 37
3 Róbert Leó Arnórsson * GKG 24 15 21 36
Besta skor í höggleik
1 Sigurður Arnar Garðarsson * GKG 2 37 35 72
Unglingamótaröð GKG – Stelpur 14 ára og yngri
Punktakeppni
1 Hulda Clara Gestsdóttir * GKG 20 20 17 37
2 Eva María Gestsdóttir * GKG 25 14 22 36
3 Katla Björg Sigurjónsdóttir * GKG 48 14 20 34
Besta skor í höggleik
1 Hulda Clara Gestsdóttir * GKG 20 43 47 90
Meistaraflokkur kvenna
Punktakeppni
1 Elísabet Ágústsdóttir * GKG 16 16 24 40
2 Særós Eva Óskarsdóttir * GKG 9 17 20 37
3 Freydís Eiríksdóttir * GKG 17 15 20 35
Besta skor í höggleik
1 Særós Eva Óskarsdóttir * GKG 9 41 38 79