Golfhermamót hjá GKG fór fram s.l. laugardag og var leikið á seinni níu á St. Andrews Old course. Mótið var í samstarfi við N1 sem gaf verðlaunin. 

Margir náðu mjög góðum árangri og urðu úrslitin þessi:

  1. sæti Daði Granz 26 punktar – Kennsla í Trackman 30 mín m. PGA kennara og glaðningur frá N1
  2. sæti Vignir Hlöðversson 24 punktar – 2×30 mín í Trackman golfhermi og glaðningur frá N1
  3. sæti Sverrir Magnússon 24 punktar – 1×30 mín í Trackman golfhermi og glaðningur frá N1

Vignir hlaut 2. sætið eftir að varpað hafði verið hlutkesti.

Ósótta vinninga er hægt að nálgast í golfverslun GKG.

Við þökkum kærlega fyrir góða þátttöku!