Þá er að koma að einu skemmtilegasta móti sumarsins en það verður haldið laugardaginn 27. maí. Um er að ræða hjóna og parakeppni GKG.
Leikfyrirkomulagið er betri bolti m/forgjöf þar sem betra skor liðsins telur á holu. Um er að ræða innanfélagsmót en makar úr öðrum klúbbum eru þó velkomnir.
Mótsgjaldið er 5.800 kr. á mann, innifalið í verðinu er hátíðarkvöldverður hjá Mulligan.
Hátíðarkvöldverðurinn hefst kl. 19:00 og mun skemmtinefnd GKG sjá um stuðið. Vignir vert í Mulligan mun galdra fram eðalkræsingar að hætti hússins. Þetta er tækifærið fyrir okkur GKG-inga að eiga saman góðan dag á golfvellinum … og enn betri stund um kvöldið!!
Þar sem mótið er hjóna og para keppni, þá þarf að skilgreina betur hvað er átt við hvenær fólk er par.
Par þarf ekki endilega að vera kærustupar. Aðalatriðið er að parið séu góðir vinir, hafi skemmtun af því að spila golf saman og njóti þess að fara saman í kvöldverðinn hjá Vigni vert. Tekin verður mynd af sigurparinu og verður hún hengd upp í klúbbhúsi undir yfirskriftinni “GKG Hjón/Par ársins 2017”.
Hámarks forgjöf karla er 24 og hámarksforgjöf kvenna er 28.
Í upphafi hrings verður tekin mynd af hollinu og verður myndin afhent þegar mótinu er lokið.
Glæsileg verðlaun fyrir 1.-3. sæti.
Skráning í mótið er hafin á golf.is.