Árleg holukeppni golfklúbba er innanfélagsmótið, þar sem hinn almenni kylfingur á góða möguleika að verða klúbbmeistari og hljóta titilinn „Holumeistari GKG“. Þetta er mótið, þar sem allir eiga jafna möguleika á sigri, ekkert síður kylfingar með háa forgjöf.

Í holukeppni með forgjöf er það bara dagsformið sem ræður!

Sunnudaginn 1. júní fer fram úrökumót fyrir hina eiginlegu holukeppni. Fyrsti ráshópur verður ræstur út kl 08:00 og svo næstu ráshópar á 10 mín fresti.

Þeir 32, sem fá flesta punkta, komast áfram í sjálfa holukeppnina. Einungis er hægt að taka þátt í mótinu með því að skrá sig í uppgefna rástíma inn á mótaskrá golf.is

Fyrstu umferð í holukeppninni skal lokið eigi síðar en 21. júní.

Önnur umferð skal fara fram á tímabilinu 22 júní-8.júlí og síðan áfram á ca 2ja vikna fresti. Gert er ráð fyrir að úrslitaviðureignin fari fram fyrstu vikuna í september og ræðst þá hver verður holumeistari GKG árið 2014.

Verðlaunin eru veitt á aðalfundi klúbbsins í lok árs 2014!

Skráningu í mótið skal lokið fyrir kl 16:00 á föstudag 30. maí.

Keppnisgjald kr [3.000] greiðist við afhendingu skorkorta.

Keppnisgjald rennur óskipt til kaupa á trjám og runnum til gróðursetningar á vellinum í haust.