About Agnar Már Jónsson

This author has not yet filled in any details.
So far Agnar Már Jónsson has created 580 blog entries.

Samningur við sveitafélögin í höfn

Í dag var skrifað golfklúbbur GKG undir samning við sveitafélögin Garðabæ og Kópavog um byggingu nýrrar íþróttamiðstöðvar GKG. Um er að ræða 1.400 fermetra hús sem skiptist í almenna félagsaðstöðu og æfingaaðstöðu. Æfingaaðstaðan verður hin veglegasta og verður búin fullkomnum sveiflugreiningartækjum, golfhermum auk pútt og vippaðstöðu.

Ljóst er að nýja aðstaðan […]

Aðalfundur GKG 2014

Aðalfundur GKG var haldinn fimmtudagskvöldið 11. desember 2014.

Guðmundur Oddsson fór yfir helstu atburði 2014 en þeir voru

  • 20 ára afmæli GKG
  • Íslandsmótið í golfi 2014
  • Bygging íþróttamiðstöðvar

Ekki er hafin bygging Íþróttamiðstöðvarinnar þó svo að allar áætlanir hafi gert ráð fyrir því. Ástæðan er sú að lengri tíma hefur tekið að ganga frá samningum […]

Aðalfundur GKG fyrir starfsárið 2014

Boðað er til aðalfundar GKG fimmtudaginn 11. desember. Fundurinn verður haldinn í félagsheimili GKG og hefst kl. 20:00. Dagskráin er sem hér segir:

1. Fundarstjóri og fundarritari kosnir.
2. Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.
3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykkis.
4. Rekstrar- og fjárfestingaáætlun komandi starfsárs kynnt.
5. Lagabreytingar og […]

Nefnd um framþróun 9 holu vallar GKG – Mýrinnar

Vallarnefnd GKG hefur ákveðið að setja á laggirnar nefnd sem setur saman hugmyndir um framþróun 9 holu vallar GKG.

Mýrin gegnir lykilhlutverki í starfsemi klúbbsins og því meginmarkmiði að vera fjölskylduvænn golfklúbbur. Mýrin er sá völlur sem börn og unglingar byrja á að spila og gegna þá gullteigarnir miklu máli, með […]

Breyting á 18. flöt Leirdalsvallar

Kæru félagar.

Liður í byggingu Íþróttamiðstöðvar GKG er að færa 18 flötina fjær fyrirhugaðri byggingu. Miklar jarðvegsbreytingar verða í kringum flötina þegar farið verður af stað með bygginguna og því nauðsynlegt að færa flötina.

Núverandi flöt hefur sigið mikið á undanförnum árum og er það tímaspursmál hvenær hallinn verður orðinn það mikill […]

GKG styrkir sveitir Keilis á EM með þáttöku í mánaðarmótinu

Keilir náði þeim frábæra árangri nú í ár að vinna tvöfalt í sveitakeppnum karla og kvenna. Keilir mun því senda sveitir á EM karla annars vegar og EM kvenna hins vegar á næsta ári. Keilis menn settu upp stórskemmtilegt styrktar mót sem felst í því að einstaklingar geta spilað eins […]

Félagsfundur GKG, þriðjudaginn 2. september kl. 20:00 í stjörnuheimilinu

Nú stefnir allt í það að við hefjum framkvæmdir á íþróttamiðstöð GKG í haust. Að því tilefni boðum við til félagsfundar þar sem við förum yfir lokadrög af teikningum og hönnun húsnæðisins sem hafa tekið breytingum frá því við héldum síðasta fund. Fundurinn verður haldinn í Stjörnuheimilinu Ásgörðum, þriðjudaginn 2. […]

Kvennalið GKG í sveitakeppni eldri kylfinga

Þær konur sem valdar eru til að keppa fyrir hönd GKG í sveitakeppni eldri kylfinga á Hústóftarvelli Grindavík eru:

  • Áslaug Sigurðardóttir
  • Bergljót Kristinsdóttir
  • Elisabet Böðvarsdóttir
  • Hanna Bára Guðjónsdóttir
  • Jóhanna Ríkey Sigurðardóttir
  • Jónína Pálsdóttir
  • María Málfríður Guðnadóttir
  • Sigríður Olgeirsdóttir

Mótið fer fram 22. – 24. ágúst

Á myndinni má sjá kvennaliðið GKG 2011

 

MHG lánar GKG golfbíla vegna Íslandsmótsins

Það er að mörgu að huga þegar haldið er golfmót að þeirri stærðargráðu sem Íslandsmótið í golfi er. Einn þátturinn er golfbílar en 25 bílar þurfa að vera til taks fyrir mótsstjórn, fjölmiðla, dómara, sjálfboðaliða og tímaverði.

MHG gerði sér lítið fyrir og lánaði GKG 10 golfbíla til að sinna ofangreindum […]

Go to Top