About johann

This author has not yet filled in any details.
So far johann has created 246 blog entries.

Sigmundur Einar útnefndur til íþróttamanns Garðabæjar 2006

Tveir kylfingar úr GKG voru í hópi þeirra 10 sem komu til greina sem íþróttamaður Garðabæjar fyrir árið 2006. Það voru þeir Birgir Leifur Hafþórsson og Sigmundur Einar Másson.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar tilnefndi síðan sex íþróttamenn sem útnefndir voru til kjörsins […]

By |14.01.2007|Categories: Fréttir almennt|

Herrakvöld á Hótel Loftleiðum – Happdrætti

Nokkrir af stuðningsmönnum Birgis Leifs hafa ákveðið að efna til herrakvölds á Hótel Loftleiðum föstudagskvöldið 29. desember (í kvöld) klukkan 19:00. Miðar fást í öllum golfbúðunum Nevada Bob, Hole in One og Golfbúðinni í Hafnarfirði. Miðinn kostar 7.500 krónur og rennur allur ágóði af þessu kvöldi til Birgis Leifs sem er að hefja þáttöku á Evrópumótaröðinni. Hægt verður að fá miða við innganginn einnig.
Boðið verður upp á fordrykkinn Miðnes við komuna og hljómsveitin Bardukha mun leika ljúfa tóna á meðan.
Matseðill kvöldsins er ekki af verri endanum enda um snilldar kokka að ræða í eldhúsinu á Loftleiðum. Boðið verður upp á þriggja rétta steikarhlaðborð sem hæfir sprækum karlmönnum á öllum aldri.

 Birgir Leifur mun segja frá sér og sínum næstu skrefum á Evrópumótaröðinni. Þá mun hann gefa gestum tækifæri til að ræða við hann um allt sem þeim dettur í hug, s.s. hvernig lífið sé á Evróputúrnum, lífið í Lúxemburg, þátttaka á íslandi, hvað sé framundan o.fl.

Sjáðu matseðil með því að smella á "Lesa meira" hér til hliðar >>

By |29.12.2006|Categories: Fréttir almennt|

Derrick Moore og Úlfar Jónsson semja við GKG

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar hefur samið við þá Derrick Moore og Úlfar Jónsson til að sjá um öll þjálfunar og kennslumál GKG.

Það er mikill hvalreki fyrir GKG að fá þessa landsfrægu einstaklinga til þess að sjá um kennslumál klúbbsins. Þeir félagar munu starfa sameiginlega að öllum kennslu og þjálfunarmálum allra kylfinga GKG sem þess óska. Þeim til aðstoðar verður síðan Hlynur Þór Haraldsson sem nú stundar nám hjá PGA í Noregi. Þessi hópur faglærðra kennara mun auka enn á gæði þeirrar þjónustu sem GKG hefur lagt áherslu á undanfarið gagnvart sínum nemendum á öllum stigum. (Sjá meira)

By |15.12.2006|Categories: Fréttir almennt|

Aðalfundur GKG 2006

Guðmundur Oddsson endurkjörinn formaður

Aðalfundur Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar var haldinn í Smáranum í Kópavogi síðastliðinn laugardag. Það voru 43 félagsmenn sem mættu á aðalfundinn að þessu sinni og var almennt álitið að fundurinn hefði tekist vel.

Miklar umræður urðu á köflum um hin ýmsu málefni og má lesa fundargerð

By |28.11.2006|Categories: Fréttir almennt|
Go to Top