About Úlfar Jónsson

This author has not yet filled in any details.
So far Úlfar Jónsson has created 854 blog entries.

Vel heppnuð golfkynning í gær í Kórnum

Vel heppnuð golfkynning fór fram í Kórnum í gær fyrir 9-11 ára. Um 20 krakkar mættu og alíka jafn margir aðstandendur. Það var því þröngt á þingi í golfaðstöðunni okkar en mjög góð stemmning og ekki var að sjá annað en að ungir sem eldri nutu sín vel. María Guðnadóttir, […]

Golfkynning hjá GKG fyrir 9-11 ára í Kórnum á laugardag

Þessi póstur er sendur á foreldra þátttakenda á barnanámskeiðum GKG s.l. sumar, fædd 2004-2006.

Við viljum bjóða börnum fæddum 2004-2006 á ókeypis námskeið í æfingaaðstöðu GKG í Kórnum á laugardag n.k. Mæting er kl. 10 og stendur námskeiðið til kl. 10:50. Notast verður við SNAG golfbúnaðinn, sem og venjulegar kylfur. Námskeiðið […]

Púttmótaröð GKG barna og unglinga hefst á laugardag

Púttmótaröð barna og unglinga í GKG rennur af stað á laugardag kl. 11 í Kórnum.
Mótin verða með hefðbundnu sniði líkt og undanfarin ár. Óþarfi er að skrá sig, bara mæta, og þátttaka er ókeypis.
Sjá helstu upplýsingar hér fyrir neðan.

Mótaröðin stendur yfir í fjóra mánuði, fyrsta mótið 31. janúar og seinasta […]

Meistaraflokksráð GKG – ný afreksstefna og sóknaráætlun

Á haustmánuðum síðasta árs setti íþróttanefnd GKG á laggirnar sérstakt meistaraflokkráð til að styðja við bakið á íþróttastjóra og afreksþjálfara í málefnum meistaraflokka klúbbsins. Meistaraflokksráðið skipa Gunnar Páll Þórisson, Þórður Már Jóhannesson og Sigmundur Einar Másson.

Meistaraflokksráðið ásamt Úlfari íþróttastjóra og Derrick afreksþjálfara hafa gert stöðugreiningu og mat á því hvernig […]

Opnunartímar í Kórnum veturinn 2015

Kæru félagar.

Við viljum benda á að æfingaaðstaða GKG er opin í Kórnum fyrir félagsmenn og hvetjum við alla til að nýta sér hana og æfa vel núna og koma vel undirbúin til leiks í vor. Áður en við vitum þá verður komið grænt gras og við flykkjumst út á völl að […]

Birgir Leifur íþróttamaður Kópavogs!

Birgir Leifur Hafþórsson var fyrir skömmu útnefndur íþróttakarl Kópavogs. Birgir Leifur sankar að sér viðurkenningum þessa dagana en hann var á dögum valinn kylfingur ársins í karlaflokki af GSÍ. Birgir Leifur er vel að þessum titlum kominn enda fremsti kylfingur landsins og frábær fyrirmynd. Við óskum honum innilega til hamingju […]

Jólafrí frá æfingum GKG

Frí verður frá skipulögðum æfingum GKG frá og með 19. des til 4. janúar. Æfingar hefjast á ný samkvæmt óbreyttri æfingatöflu 5. janúar.

Kórinn verður lokaður 23.-26. des og frá 30.12-2.jan. Alla aðra daga er opið og viljum við hvetja ykkur til að brjóta upp jólafríið og æfa sjálf í Kórnum, […]

Æfingar barna og unglinga falla niður í dag vegna veðurs

Vonskuveður er í dag, og fer síst batnandi með deginum.

Æfingar falla því niður í dag þriðjudag í Kórnum hjá okkur.

bestu kveðjur,

þjálfarar GKG

Úr frétt frá mbl.is: “Ófært er í efri byggðum Kópa­vogs og eru starfs­menn þjón­ustumiðstöðvar bún­ir að loka við Fífu­hvamms­vegi / Sala­veg og Linda­kirkju.”

mynd: mbl.is

Góður upplýsingafundur um háskólagolf hjá Sigmundi

Sigmundur Einar Másson úr GKG, eða Simmi eins og flestir þekkja hann, hélt góðan fræðslufyrirlestur um háskólagolf í Bandaríkjunum í gærkvöldi í golfskála GKG. Fundurinn var mjög vel sóttur, en um 30 áhugasamir kylfingar og foreldrar hlýddu á Simma flytja fræðandi fyrirlestur um hvað þarf að hafa í huga þegar […]

By |26.11.2014|Categories: Fréttir|
Go to Top