Æfingaferð GKG unglinga til Costa Ballena, Spáni í mars 2008
Fríður hópur efnilegustu kylfinga klúbbsins hélt í 10 daga ferð til Costa Ballena á Spáni á Páskadag s.l. Alls voru um að ræða 8 pilta og 8 stúlkur úr röðum afrekshóp unglinga. Þeir piltar sem fóru voru Ari Magnússon, Bjarki Þór Júlíusson, Guðbjartur Örn Gunnarsson, Guðjón Ingi Kristjánsson, Gunnar Snær Gunnarsson, Jón Sævar Brynjólfsson, Ragnar Már Garðarsson og Starkaður Sigurðarson. Stúlknahóp skipuðu Björk Sigurjónsdóttir, Erna Valdís Ívarsdóttir, Ingunn Gunnarsdóttir, Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Jóna Þórarinsdóttir, Lovísa Sigurjónsdóttir, Ninna Þórarinsdóttir og Selma Dögg Kristjánsdóttir. Einnig voru með í för og æfðu samkvæmt æfingaskipulagi tveir úr afrekshópi karla, þeir Gestur Gunnarsson og Hlynur Stefánsson. Krakkarnir söfnuðu fyrir ferðinni með sölu á ýmsum varningi auk dósasöfnunar og var útlagður kostnaður klúbbsins enginn.
Um helgina lauk 3. stigamóti ársins í Arion banka mótaröð GSÍ. Leikið var á Strandarvelli við Hellu. GKG kylfingar stóðu sig mjög vel og sigraði Ragnar Már Garðarssson í flokki 15-16 ára, lék á 66 höggum á seinni keppnisdegi og sigraði […]
GKG hefur fengið góða viðbót í þjálfarateymi sitt, en Hlynur Þór Haraldsson hefur verið ráðinn í fullt starf sem þjálfari. Hlynur mun sinna barna- og unglingastarfinu, og sömuleiðis þjálfa meistaraflokka og afrekshópa GKG ásamt Derrick Moore. Þess utan mun hann sinna einkakennslu almennum kylfingum. Hlynur er uppalinn […]

