About Úlfar Jónsson

This author has not yet filled in any details.
So far Úlfar Jónsson has created 858 blog entries.

Æfingaferð GKG unglinga til Costa Ballena, Spáni í mars 2008

Fríður hópur efnilegustu kylfinga klúbbsins hélt í 10 daga ferð til Costa Ballena á Spáni á Páskadag s.l. Alls voru um að ræða 8 pilta og 8 stúlkur úr röðum afrekshóp unglinga. Þeir piltar sem fóru voru Ari Magnússon, Bjarki Þór Júlíusson, Guðbjartur Örn Gunnarsson, Guðjón Ingi Kristjánsson, Gunnar Snær Gunnarsson, Jón Sævar Brynjólfsson, Ragnar Már Garðarsson og Starkaður Sigurðarson. Stúlknahóp skipuðu Björk Sigurjónsdóttir, Erna Valdís Ívarsdóttir, Ingunn Gunnarsdóttir, Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Jóna Þórarinsdóttir, Lovísa Sigurjónsdóttir, Ninna Þórarinsdóttir og Selma Dögg Kristjánsdóttir. Einnig voru með í för og æfðu samkvæmt æfingaskipulagi tveir úr afrekshópi karla, þeir Gestur Gunnarsson og Hlynur Stefánsson. Krakkarnir söfnuðu fyrir ferðinni með sölu á ýmsum varningi auk dósasöfnunar og var útlagður kostnaður klúbbsins enginn.

Frábær byrjun GKG kylfinga

GKG kylfingar áttu sannkallaða óskabyrjun á fyrsta hring Íslandsmóts unglinga í Vestmannaeyjum og leiða í öllum piltaflokkum mótsins. Aron Snær Júlíusson lék á 72 höggum og leiðir með þriggja högga mun í flokki 14 ára og yngri. Ragnar Már Garðarsson lék á 75 höggum  og deilir efsta sætinu ásamt tveimur […]

By |17.07.2010|Categories: Fréttir almennt|

Tveir kylfingar úr GKG í íslenska landsliðinu

Íslenska landsliðið sem keppir í Evrópumóti landsliða í Svíþjóð var tilkynnt í morgun. Tveir kylfingar úr GKG eru í liðinu, þeir Sigmundur Einar Másson og Alfreð Kristinsson. Við óskum þeim til hamingju með valið. Derrick Moore, þjálfari hjá GKG er þjálfari landsliðsins. Liðið er skipað eftirfarandi kylfingum:

Alfreð Brynjar Kristinsson GKG

By |25.06.2010|Categories: Fréttir almennt|

Hlynur Þór ráðinn þjálfari

GKG hefur fengið góða viðbót í þjálfarateymi sitt, en Hlynur Þór Haraldsson hefur verið ráðinn í fullt starf sem þjálfari. Hlynur mun sinna barna- og unglingastarfinu, og sömuleiðis þjálfa meistaraflokka og afrekshópa GKG ásamt Derrick Moore. Þess utan mun hann sinna einkakennslu almennum kylfingum. Hlynur er uppalinn […]

Nýtt vallarmet á Leirdalsvelli

Fyrsta mótið af þremur í Bushnell mótaröð meistaraflokkskylfinga fór fram í gær í GKG. Um er að ræða samstarf milli GKG, GO og GK. Mótaröðin er hluti af uppbyggingar og afreksstarfi klúbbanna og miðar að því að undirbúa afrekskylfinga til þátttöku á GSÍ mótaröðinni. Mótin eru þrjú talsins en tvö […]

By |09.06.2010|Categories: Fréttir almennt|
Go to Top