Karen Lind og Daníel Ísak sigruðu á Lexus bikarnum
Daníel Ísak Steinarsson og Karen Lind Stefánsdóttir stóðu uppi sem sigurvegarar þegar Lexus bikar GKG lauk á Leirdalsvelli á laugardag. Daníel lék alla hringina undir pari og lauk mótinu á tíu höggum undir pari. Karen leiddi kvennaflokkinn frá fyrsta hring og vann að lokum með átta högga mun.









