Jólafrí frá æfingum barna og unglinga 21. des til 3. jan

Nú styttist í jólafrí hjá okkur, en við verðum með æfingar til og með þriðjudagsins 20. desember.

Á mánudag og þriðjudag í næstu viku verður jólaþema þannig að upplagt að koma á æfingar með jólahúfu eða eitthvað annað jólalegt.

Æfingar hefjast síðan að nýju 4. janúar samkvæmt æfingatöflu.

Íþróttamiðstöðin verður aðeins lokuð 24.-26. […]

GKG afrekskylfingar í háskólum Bandaríkjanna – Aron Snær Júlíusson

Landsliðsmaðurinn Aron Snær Júlíusson hóf nám í haust við University of Louisiana – Lafayette á golf skólastyrk. Við fengum hann til að svara nokkrum léttum spurningum.

Nafn: Aron Snær Júlíusson
Fæddur: 1996
Meðlimur í GKG síðan 2006
Forgjöf í dag: +1,8
Skóli: University of Louisiana, Lafayette, Louisiana.
Heimasíða golfliðsins
Upplýsingar um mótaskrá og árangur golfliðs […]

GKG kylfingar í háskólum Bandaríkjanna – Emil Þór Ragnarsson

Emil Þór Ragnarsson er einn af afrekskylfingum GKG sem sækir nám við háskóla í Bandaríkjunum á golf skólastyrk. Hann er á öðru ári hjá Nicholls State University í Louisiana og fengum við hann til að svara nokkrum léttum spurningum.

Nafn: Emil Þór Ragnarsson
Fæddur: 1994
Meðlimur í GKG síðan 2004
Forgjöf í dag: 1,3
Skóli: Nicholls […]

GKG afrekskylfingar í háskólum Bandaríkjanna – Særós Eva Óskarsdóttir

Þrír afrekskylfingar bættust við í hóp þeirra sem sækja háskólanám í Bandaríkjunum á golf skólastyrk. Fyrir eru Ragnar Már Garðarsson sem er núna á sínu lokaári hjá University of Louisiana – Lafayette. Emil Þór Ragnarsson er á öðru ári við nám hjá Nicholls State háskólann í Louisiana. Í haust bættust […]

Sigurður Arnar og Hulda Clara kylfingar ársins hjá GKG

Uppskeruhátíð GKG fór fram fyrir stuttu í Íþróttamiðstöðinni, og var svo sannarlega gaman að geta haldið þessa hátíð á heimavelli. Alls mættu um 60 iðkendur og svipaður fjöldi aðstandenda kom einnig og tók þátt í fögnuðinum. Dagurinn hófst á pútt- og vippkeppni í inniæfingaaðstöðunni. Að verðlaunaafhendingu lokinni var pizzuveisla í boði […]

Skráning hafin á vetraræfingar barna og unglinga 2016-2017

Vetraræfingar barna og unglinga í GKG hefjast 7. nóvember, en minnum á að við erum enn með haustæfingar í gangi á GKG æfingasvæðunum til 22. september. Til að taka þátt í vetraræfingunum þá þarf að vera félagsmaður í GKG og skrá sig á æfingar hér. Upplýsingar um æfingatöfluna finnurðu einnig á sömu […]

Sigurður sigraði í fimmta sinn í röð á Íslandsbankamótaröðinni!

Fimmta og næsta síðasta mót ársins 2016 á Íslandsbankamótaröð yngri kylfinga fór fram á Húsatóftavelli í Grindavík um helgina. Veðrið lék við keppendur sem voru rétt um 130 og að venju var keppt í þremur aldursflokkum hjá báðum kynjum.

GKG stóðu sig vel að venju og hélt sigurganga Sigurðar Arnars áfram, […]

Skráning hafin á námskeið í næstu viku (29.8 – 1.9)

Uppfært föstudaginn 26.8 kl. 09:00

Í næstu viku, 29. ágúst – 1. september, hefjast ný námskeið hjá Hlöðveri PGA kennara. Námskeiðin henta breiðum hópi kylfinga, allt frá háforgjafarkylfingum til lengra komna. Námskeiðin eru opin öllum, ekki einungis félagsmönnum GKG. Hópastærð er takmörkuð við 5 manns þannig að hver og einn fær […]

Úrslit eftir 6. mótið í Egils Kristals mótaröðinni

Sjötta og seinasta mótinu í Egils Kristals mótaröð GKG lauk í gær. Hér fyrir neðan má sjá nöfn þeirra sem náðu verðlaunasætum, en heildarúrslit eru að finna á www.golf.is.

Í þetta sinn tóku 36 keppendur þátt.  Við þökkum öllum kærlega fyrir þátttökuna og óskum verðlaunahöfum innilega til hamingju með árangurinn.

Í byrjun október verður […]

Úrslit eftir 5. mótið í Egils Kristals mótaröðinni

Fimmta mót af sex í Egils Kristals mótaröð GKG fór fram miðvikudaginn 10. ágúst. Hér fyrir neðan má sjá nöfn þeirra sem náðu verðlaunasætum, en heildarúrslit eru að finna á www.golf.is.

Í þetta sinn tóku 38 keppendur þátt.  Við þökkum öllum kærlega fyrir þátttökuna og óskum verðlaunahöfum innilega til hamingju með árangurinn.

Verðlaun […]

Go to Top