Skráning hafin á vetraræfingar GKG

Opnað hefur verið fyrir skráningar á vetraræfingar GKG. Við tökum í notkun skráningarkerfi sem kallast Nóri, en mörg íþróttafélög nota þetta kerfi við skráningar iðkenda sinna.

Vetraræfingarnar hefjast 11. nóvember í Kórnum og er nauðsynlegt að hafa lokið skráningu í seinasta lagi miðvikudaginn 6. nóv.

Æfingatöflu, skráningarformið og aðrar nauðsynlegar upplýsingar er […]

Uppskeruhátíð barna- og unglingastarfs GKG

Í gær fór fram uppskeruhátíð barna- og unglingastarfs GKG og var hún haldin með öðru sniði en undanfarin ár. Að þessu sinni voru spilaðar 9 holur í Mýrinni á undan verðlaunaafhendingunni, með Texas scramble fyrirkomulagi. Veðrið lék við okkur og kom líklega með betri dögum ársins, þannig að allir nutu […]

Aron Snær endaði í 32. sæti á Duke of York

Keppni lauk fyrr í dag á Duke of York Young Champions mótinu, sem haldið er á hinum fræga strandvelli Royal St. Georges velli í Kent á Englandi. Það var Ítalinn Guido Migliozzi sem sigraði á 215 höggum (+5). Hann endaði einu höggi á undan Englendingnum Jack Singh Brar. […]

Þrír sigrar hjá GKG kylfingum um helgina á Íslandsbankamótaröðinni

Um helgina lauk 7. og seinasta stigamótinu í Íslandsbankamótaröðinni á þessu tímabili, en mótið fór fram í Grafarholti. Okkar kylfingar stóðu sig mjög vel, en Óðinn Þór (15-16 ára drengir), Egill Ragnar (17-18 ára piltar) og Særós Eva (17-18 stúlkur), sigruðu í sínum flokkum. Þetta var fyrsti sigur Egils í […]

GKG kylfingar í verkefnum erlendis á næstunni

Tímabilinu er svo sannarlega ekki lokið hjá okkar fremstu kylfingum, en þeir verða á faraldsfæti á næstu vikum.

Emil Þór Ragnarsson tekur þátt í Opna austurríska áhugamannamótinu 5. – 8. september, en mótið fer fram á Golf Club Linz í St. Florian í Austurríki. Sigmundur Einar Másson sigraði einmitt á þessu […]

Úrslit í fjórða Mix mótinu

Fjórða og seinasta mótið í sumar í Mix mótaröðinni fór fram í gær, og var frábær þátttaka, en alls luku 52 keppendur keppni. Hér fyrir neðan má sjá úrslit mótsins en heildarúrslitin verða send á netföng foreldra keppenda.

Við þökkum öllum fyrir þátttökuna og bendum verðlaunahöfum þessa móts að vitja vinninga […]

Óðinn Þór keppir á sterku móti í Þýskalandi

Óðinn Þór Ríkharðsson, hélt utan í dag til keppni á European Young Masters mótinu, sem haldið verður á Hamburger Golf Club, eða Falkenstein eins og hann er oftast kallaður. Mótið hefst á fimmtudag og lýkur á laugardag. Um er að ræða gríðarlega sterkt mót, en fremstu kylfingar Evrópu […]

Fyrstu sigrar hjá Særós og Braga. Aron Snær óstöðvandi

Um helgina fór fram fimmta mótið á tímabilinu í Íslandsbankamótaröð unglinga, og var leikið að þessu sinni hjá Golfklúbbi Akureyrar.

Okkar ungu kylfingar gerðu gott mót og náðust sigrar í þremur flokkum af sex, en einnig komust þrír aðrir á verðlaunapall. Særós Eva Óskarsdóttir og Bragi Aðalsteinsson náðu sínum fyrstu sigrum […]

Íris, Freydís, Hlynur og Viktor með besta árangur í V Sport mótaröðinni í gær

Í gær fór fram fjórða mótið af sex í V Sport mótaröðinni.

Hér fyrir neðan má sjá verðlaunahafana í mótinu í gær, flottur árangur hjá mörgum og forgjöfin heldur áfram að lækka.

Þökkum fyrir góða þátttöku og minnum á næsta mót sem fer fram 31. júlí, og sem fyrr lýkur skráningu tveimur […]

Úrslit í móti nr. 2 í Mix mótaröðinni

Í gær fór fram annað mótið af fjórum  í Mix mótaröð barna og unglinga. Í mótinu tóku 37 keppendur þátt og voru aðstæður góðar. Úrslitin eru hér fyrir neðan, og óskum við öllum verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn, og öllum keppendum þökkum við fyrir þátttökuna og vonum að allir hafi […]

Go to Top