GKG innleiðir GLFR appið – vallarvísir og skortaka með tengingu við golf.is

Fjölmargir Íslenskir golfklúbbar tóku sig saman síðastliðinn vetur og gerðu samning um innleiðingu á GLFR appinu. GLFR appið er rafrænn vallarvísir sem heldur utan um skor kylfinga, lætur hann vita um allar fjarlægðir og að leik loknum er hægt að senda skorkortið með rafrænum hætti á golf.is.

Starfsfólk GKG sér sjálft […]

Risastór dagur á morgun í GKG – Annika kemur í heimsókn!

Stelpugolfdagurinn 2018 fer fram sunnudaginn 10. júní milli kl. 14:00 og 17:00 á æfingasvæði Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar líkt og undanfarin ár.

PGA á Íslandi og Golfsamband Íslands halda uppteknum hætti en í ár mun tífaldur risameistari og einn sigursælasti kylfingur heims, Annika Sörenstam frá Svíþjóð, halda sýnikennslu í Stelpugolfi. 

Sýnikennslan fer fram kl. 14-15 […]

By |09.06.2018|Categories: Fréttir almennt|

Úrval Útsýn mánudagsmótaröðin – staðan eftir tvær umferðir

Annari umferð Úrval Útsýn mánudagsmótaraðarinnar lauk í vikunni og var frábær þátttaka og leikið í fínasta veðri. Alls hafa 125 kylfingar skilað inn gildu skori í mótaröðinni. 

Alls eru níu umferðir og gilda þrír bestu hringirnir.

Smellið hér til að skoða stöðuna eftir tvær umferðir í kvennaflokki.

Smellið hér til að […]

Guðfinna vann Evrópuferð með Icelandair!

Í gær var opið hús hjá okkur í GKG þegar við buðum við áhugasömum núverandi og verðandi kylfingum að skoða aðstöðuna okkar, kynnast félagsstarfinu og öllu sem GKG hefur upp á að bjóða. Fjölmargir mættu yfir daginn og tóku þátt í léttum golfþrautum og fengu upplýsingar um félagsaðild og hvað […]

Kvennagolf á þriðjudögum

Sælar GKG konur,

Minnum á að þriðjudagstímarnir okkar byrja á morgun í Mýrinni. Spilað verður alla þriðjudaga rástímar frá kl. 17.00 – 18.50. Síðasta þriðjudag í mánuði er golfmót. Skráningar í tímana fer fram eins og fyrr á golf.is inn á mótaskrá GKG. Opnað verður fyrir skráninguna á miðvikudögum (6 dögum […]

Tiltektardagur GKG á miðvikudag kl. 16:30

Nú styttist í hinn árlega tiltektardag okkar í GKG. Við ætlum meðal annars að hreinsa rusl af vellinum og nánasta umhverfi hans einnig ætlum við að gera allt fínt og fallegt í kringum og inni í Íþróttamiðstöðinni okkar svo eitthvað sé nefnt. Það er okkar von að sem flestir sjái […]

Námskeið fyrir nýja félagsmenn GKG sem eru byrjendur

Við tökum vel á móti nýjum félagsmönnum og bjóðum nýliðum kennslu í golftækni og spili.

Nýliðanámskeiðin eru einungis opin fyrir nýja félaga í GKG sem eru að stíga fyrstu skrefin í golfinu. Þessi námskeið eru ekki ætluð börnum, en við bendum á æfingar fyrir börn og unglinga. Gjald per […]

Hilmar Snær kominn heim eftir glæsilegan árangur á Ólympíuleikunum

Hilmar Snær Örvarsson, þátttakandi fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikum fatlaðra kom heim á mánudag eftir vel heppnaða för til Pyeongchang í Suður-Kóreu. 

„Þetta er mik­il upp­lif­un og var mikið stærri viðburður en ég hafði reiknað með,“ sagði Hilm­ar Snær í viðtali við mbl.is á dögunum.

Go to Top