Flottur árangur hjá Óla á Braviken Open í Svíþjóð

Ólafur Björn Loftsson, GKG, endaði í 15. sæti á Bråviken Open sem er hluti af Nordic Tour atvinnumótaröðinni.

Ólafur Björn lék frábært golf og endaði á -12  samtals á Bråvikens vellinum í Svíþjóð (66-70-68) 204 högg. Það dugði eins og áður segir í 15. sæti en Svíinn Hampus Bergman sigraði með yfirburðum […]

Ísland endaði í 35.-36. sæti á HM áhugakylfinga – Aron Snær efstur Íslendinganna

 
Íslenska karlalandsliðið í golfi endaði í 35.-36. sæti á HM áhugakylfinga sem fram fór á Írlandi. Danir fögnuðu heimsmeistarartitlinum, Bandaríkin varð í öðru sæti og Spánverjar í því þriðja.

Þetta er í 31. skipti sem mótið fer fram og eru 72 þjóðir sem tóku […]

Aron frábær á þriðja hring HM áhugamanna

Aron Snær Júlíusson, afrekskylfingur í GKG, lék á 68 höggum á þriðja hring Eisenhower Trophy mótsins, eða heimsmeistaramóti áhugamanna. Hann er eftir hringinn á samtals fimm höggum undir pari. Íslenska liðið lék á þremur höggum undir pari en bæði Bjarki Pétursson og Gísli Sveinbergsson léku á tveimur höggum yfir pari.

Fyrstu níu […]

Opna minningarmótið verður haldið 8. sept

Minningarmót til styrktar íþrótta- og afrekssviði GKG verður haldið á Leirdalsvelli GKG laugardaginn 8. september. Í mótinu höldum við sérstaklega uppi minningu þeirra Jóns Ólafssonar, Ólafs E. Ólafssonar og Konný Hansen sem áttu drjúgan þátt í að gera GKG að því sem klúbburinn er í dag.

Keppnisfyrirkomulag:
Mótið er punktamót og er […]

Ragnar Már lék vel á Opna hollenska áhugamannamótinu

Ragnar Már Garðarsson og Ingvar Andri Magnússon, afrekskylfingar úr GKG, eru við keppni erlendis á sterkum áhugamannamótum.

Ragnar Már hefur lokið keppni í Hollandi þar sem hann tók þátt í Dutch Amateur Championship á Eindhoven golf club. Ragnar lék hringina fjóra á 72-76-72-77, samtals 9 yfir pari og hafnaði í 29. […]

Hulda Clara og Ingvar Andri leika fyrir Ísland á Ólympíuleikum ungmenna!

Hulda Clara Gestsdóttir og Ingvar Andri Magnússon, afrekskylfingar í GKG, hafa verið valin til að taka þátt í Ólympíuleikum ungmenna fyrir Íslands hönd. Jussi Pitkanen landsliðsþjálfari tilkynnti valið fyrir skemmstu.

Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskir kylfingar taka þátt í þessum mikla viðburði, innilega til hamingju Hulda og Ingvar!

Mótið fer […]

GKG kynnir til leiks A sveitir karla og kvenna auk sveitir eldri kylfinga

Eftirfarandi kylfingar skipa sveitir GKG sem leika í Íslandsmótum golfklúbba á næstunni.

Í fyrstu deild kvenna verður leikið hjá Golfklúbbnum Keili á Hvaleyrarvelli 10.-12. ágúst, sömu daga keppa karlarnir hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi.

Kvennasveit GKG skipa:

Alma Rún Ragnarsdóttir
Anna Júlía Ólafsdóttir
Árný Eik Dagsdóttir
Eva Maria Gestsdottir
Hulda Clara Gestsdottir
Ingunn Einarsdóttir
Ingunn Gunnarsdóttir
María Björk Pálsdóttir
Liðsstjóri: María […]

Axel og Guðrún Brá Íslandsmeistarar. Kristófer Orri og Hulda Clara efst GKG-inga

Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Axel Bóasson, bæði úr Keili, eru Íslandsmeistarar í golfi 2018. Þetta er fyrsti titill Guðrúnar en sá þriði hjá Axel.

Axel jafnaði mótsmetið á Íslandsmótinu á -12 samtals, en Þórður Rafn Gissurarson  (GR) lék á -12 árið 2015 á Akranesi.

Þau Guðrún og Axel eru […]

Birgir Leifur kominn áfram á Evrópumótaröðinni

Birgir Leifur er við keppni á Porsche European Open mótinu en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni. Fyrsta hringinn lék hann á 72 höggum og var jafn í 63. sæti. Í dag lék hann hinsvegar á 70 höggum (-2) og er sem stendur jafn í 40. sæti, en nokkrir kylfingar eiga eftir […]

Go to Top