Ný námskeið hefjast hjá Sigurpáli 19. júní

UPPSELT ER Á ÞESSI NÁMSKEIÐ!

Framundan eru ný námskeið hjá Sigurpáli PGA kennara hjá GKG.

Námskeiðin eru opin öllum kylfingum en um er að ræða 4 skipti þar sem lögð er áhersla á góða tækni og góðar æfingar í púttum, vippum og glompu og sveiflu.

Tímasetningar í boði:

Námskeið mánudaga 19.6 – 26.6 – […]

Hulda Clara í 3. sæti í Eimskipsmótaröðinni

Hulda Clara Gestsdóttir úr GKG, 15 ára gömul, náði frábærum árangri um helgina á Eimskipsmótaröðinni þegar hún hafnaði í 3. sæti í kvennaflokki. Vel gert hjá Huldu! Í karlaflokki náði Hlynur Bergsson besta árangrinum, 6. sæti.

En þau Vikar Jónassson úr GK og Ragnhildur Kristinsdóttir GR sigruðu á Símamótinu á Eimskipsmótaröðinni […]

Undankeppni holumeistaramóts GKG 2017

Árleg holukeppni GKG er innanfélagsmótið, þar sem hinn almenni kylfingur á góða möguleika að verða klúbbmeistari og hljóta titilinn „Holumeistari GKG“. Þetta er mótið, þar sem allir eiga jafna möguleika á sigri, ekkert síður kylfingar með háa forgjöf.

Í holukeppni með forgjöf er það bara dagsformið sem ræður!

Mótið byrjar á úrtökumóti […]

Reglur um val á karlasveit eldri kylfinga GKG fyrir Íslandsmeistaramót golfklúbba 2017 (GÖ – Öndverðarnesvöllur)

Rétt til þátttöku hafa allir kylfingar sem verða 50 ára á árinu 2017 eða eru eldri.  Sveitakeppnin, (Íslandsmeistaramót golfklúbba, eldri kylfingar) fer fram á Öndverðarnesvelli í Grímsnesi dagana 18. – 20. ágúst.

Stillt hefur verið upp 6 mótum til valsins og eru talin upp hér neðar. Leikið er af gulum teigum, […]

Mánudagsmótaröð GKG 2017 (Punktakeppni GKG)

Kæru félagar,

Punktamót GKG eða mánudagsmótaröðin hefst mánudaginn 12. Júní. Um er að ræða 7 mót og eru þrír bestu hringirnir sem telja.

Í ár ætlum við ekki að setja mótið upp sem mót á golf.is heldur geta félagsmenn sent beiðni um rástíma á gkg@gkg.is viku fyrir mót.

Mótaröðin er því bæði […]

Hjóna- og parakeppni GKG 2017

Þá er að koma að einu skemmtilegasta móti sumarsins en það verður haldið laugardaginn 27. maí. Um er að ræða hjóna og parakeppni GKG.

Leikfyrirkomulagið er betri bolti m/forgjöf þar sem betra skor liðsins telur á holu. Um er að ræða innanfélagsmót en makar úr öðrum klúbbum eru þó velkomnir.

Mótsgjaldið er […]

Golfbílar á Leirdalsvelli

Frá og með fimmtudeginum 18. maí verður opið fyrir golfbíla á Leirdalsvelli. Völlurinn er enn blautur sumstaðar og eru því þeir sem eru á bílum beðnir að fara varlega um völlinn.
Við munum fylgjast með þessu og grípa til ráðstafana ef þess þarf.

Hafið þetta í huga þegar notaður er bíll:
Halda sig […]

Skráning hafin á námskeið hjá Sigurpáli 22. maí

Uppfært 12.5

Þegar uppselt á námskeiðin hjá Sigurpáli. En við bendum á námskeið á fimmtudögum hjá Hlöðveri sem hefjast 25.5. Í boði eru tímar frá 18-19; 19-20 og 20-21.

Fjögurra skipta hópnámskeið hjá Sigurpáli Geir Sveinssyni hefst 22. maí, en á námskeiðunum er lögð áhersla á grunnatriðin og góðar æfingar fyrir hvern hluta […]

Barna og unglingastarfið stal senunni í opnunarmóti GKG

Það er óhætt að segja að veðurguðirnir hafi verið í liði með okkur þegar við opnuðum vellina okkar með opnunarmóti GKG. Það var vertinn okkar hann Vignir Hlöðversson sem sló fyrsta höggið en 125 kylfingar tóku þátt í mótinu. Segja má að mótið hafi einkennst af afrakstri vetrarstarfs barna- og […]

Ánægðir GKGingar komnir heim úr félagsferð til Búlgaríu

Um 30 manna hópur GKG kylfinga heimsótti Thracian Cliffs golfvöllinn 23.-30. apríl. Að auki voru um 12 kylfingar úr öðrum klúbbum, m.a. Logi Bergmann og Rúnar Freyr Gíslason leikari auk tökuliðs, en Logi var að taka upp golf-spjallþáttaseríu sem sýnd verður á Stöð 2 í sumar.

Icegolf Travel sér um ferðir […]

Go to Top