Skráning hafin á námskeið hjá Sigurpáli 22. maí

Uppfært 12.5

Þegar uppselt á námskeiðin hjá Sigurpáli. En við bendum á námskeið á fimmtudögum hjá Hlöðveri sem hefjast 25.5. Í boði eru tímar frá 18-19; 19-20 og 20-21.

Fjögurra skipta hópnámskeið hjá Sigurpáli Geir Sveinssyni hefst 22. maí, en á námskeiðunum er lögð áhersla á grunnatriðin og góðar æfingar fyrir hvern hluta […]

Barna og unglingastarfið stal senunni í opnunarmóti GKG

Það er óhætt að segja að veðurguðirnir hafi verið í liði með okkur þegar við opnuðum vellina okkar með opnunarmóti GKG. Það var vertinn okkar hann Vignir Hlöðversson sem sló fyrsta höggið en 125 kylfingar tóku þátt í mótinu. Segja má að mótið hafi einkennst af afrakstri vetrarstarfs barna- og […]

Ánægðir GKGingar komnir heim úr félagsferð til Búlgaríu

Um 30 manna hópur GKG kylfinga heimsótti Thracian Cliffs golfvöllinn 23.-30. apríl. Að auki voru um 12 kylfingar úr öðrum klúbbum, m.a. Logi Bergmann og Rúnar Freyr Gíslason leikari auk tökuliðs, en Logi var að taka upp golf-spjallþáttaseríu sem sýnd verður á Stöð 2 í sumar.

Icegolf Travel sér um ferðir […]

Ný námskeið hjá Hlöðveri hefjast í vikunni 24. apríl

Það er upplagt að fínpússa sveifluna fyrir sumarið eða koma sér í gang með því að taka fjögurra skipta hópnámskeið hjá Hlöðveri.

Hlöðver Guðnason, PGA golfkennari og meðlimur í GKG verður með námskeið sem hefjast 24. apríl. Námskeiðin henta breiðum hópi kylfinga, allt frá byrjendum til lengra komna.

Hér fyrir neðan má sjá […]

Skemmtikvöld Taramar Kvennanefndar GKG verður 19. apríl.

Sælar GKG konur

Skemmtikvöld Taramar Kvennanefndar GKG verður 19. apríl.

Nú verður New York, New York sjöunda áratugs stemmning!

Húsið opnar kl. 19 og verður fordrykkur í boði Freixenet

– Þriggja rétta kvöldverður að hætti Vignis
– Tískusýning á golffatnaði frá Golf Company
– Verðlaunaafhending úr púttmótinu, dregið úr skorkortum
– Geir Ólafsson syngur
– Happdrætti

Verð kr. 5.000,-
Miðapantanir […]

Golfhermamót öldunga 65+

Með „Hugarflugi“ tökum við flugið til South Carolina USA og höldum þriðja vetrarmót GKG öldunga 65+ á Harbout Town  vellinum með aðstoð hinna frábæru golfherma klúbbsins.

 

Mótið fer fram þriðjudaginn 11. apríl og hefst kl 9.00.

Skráning hjá Sindra í golfbúðinni okkar

Aðeins sextán þátttökupláss í boði og því um að gera að […]

Forgjöfin heldur áfram að hrynja fram eftir öllum aldri

Við kylfingar þurfum ekki að óttast ellina því samkvæmt útreikningum okkar, þá heldur forgjöf öldungaflokks áfram að lækka fram eftir öllum aldri eins og sjá má á leitnilínu á meðfylgjandi línuriti (græna þykka línan). Á línuritinu sést að meðalforgjöf kvenna er örlítið hærri en meðalforgjöf karla. Toppinum virðast konurnar ná […]

Fyrirlestur um leikskipulag fyrir GKG konur

Hlöðver Guðnason, PGA kennari hjá GKG hélt áhugaverðan fyrirlestur í gærkvöldi fyrir GKG konur. Fyrirlestur bar yfirskriftina “Lesið í golfvelli”, og fræddust viðstaddir um hvernig á að bera sig að við að setja upp leikskipulag fyrir hina ýmsu golfvelli.

Eins og aðrir viðburðir á vegum kvennanefndar GKG þá var frábær aðsókn […]

Flottur fyrirlestur hjá Birgi Leifi fyrir félagsmenn GKG

Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG hélt fyrirlestur fyrir félagsmenn um feril sinn sem atvinnumaður. Birgir Leifur gerðist atvinnumaður fyrir 20 árum og var fróðlegt að heyra hvernig hann hagar sínu undirbúningstímabili fyrir átökin í mótaröðinni, en hann er með þátttökurétt í næstu efstu deild, Challenge mótaröðinni. Birgir Leifur sagði […]

Daði Granz sigraði í N1 golfhermamótinu í GKG

Golfhermamót hjá GKG fór fram s.l. laugardag og var leikið á seinni níu á St. Andrews Old course. Mótið var í samstarfi við N1 sem gaf verðlaunin. 

Margir náðu mjög góðum árangri og urðu úrslitin þessi:

  1. sæti Daði Granz 26 punktar – Kennsla í Trackman 30 mín m. PGA kennara og glaðningur […]
Go to Top