Hlöðver Guðnason, PGA kennari hjá GKG hélt áhugaverðan fyrirlestur í gærkvöldi fyrir GKG konur. Fyrirlestur bar yfirskriftina “Lesið í golfvelli”, og fræddust viðstaddir um hvernig á að bera sig að við að setja upp leikskipulag fyrir hina ýmsu golfvelli.

Eins og aðrir viðburðir á vegum kvennanefndar GKG þá var frábær aðsókn og nutu konurnar góðs matar, fyrirlestursins og félagsskaparins.

Kvennastarfið í GKG er afar blómlegt og mikið um að vera, sjá hér