GKG tók gínu áskoruninni

GKG tók gínu áskoruninni sem ýmsir hafa spreytt sig á undanfarnar vikur. Hér er myndbandið sem við tókum upp og það heppnaðist svona rosalega vel. Sjón er sögu ríkari.

Kæru klúbbfélagar, endilega deilið áfram til allra sem þið þekkið. Muna að smella á HD fyrir bestu gæði. 

 

Opnunartímar fyrir almenna félagsmenn í Kórnum og Íþróttamiðstöð GKG

Heilir og sælir félagar

Viljum vekja athygli á opnunartímum okkar í æfingaaðstöðu GKG, þ.e. í Kórnum og Íþróttamiðstöðinni.

Íþróttamiðstöðin

Virka daga: húsið opnar 10:00 og lokar kl. 22:00 puttflot

Æfingar barna/unglinga/afrekshópa eru frá kl 15-19 mán-fim en kl. 14-17 á föstudögum. Ekki er hægt að nota netin eða púttflötina […]

Aðalfundur GKG 2016

Aðalfundur GKG 2016 verður haldinn í Íþróttamiðstöð GKG miðvikudaginn 30. nóvevember kl. 20:00.

Dagskrá fundarins verður þannig, skv. 10. gr. laga GKG:

  1. Fundarstjóri og fundarritari kosnir.
  2. Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.
  3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykkis.
  4. Rekstrar- og fjárfestingaáætlun komandi starfsárs kynnt.
  5. Lagabreytingar og […]

Ragnar Már: “Spilum upp á hver vaskar upp og þrífur”

Landsliðsmaðurinn Ragnar Már Garðarsson er á fjórða ári sínu í Louisiana. Ragnar er einn af GKG afrekskylfingum í Bandaríkjunum, en hann stundar háskólanám við University of Louisiana – Lafayette á golf skólastyrk. Hér eru hans svör við nokkrum léttum spurningum.

Nafn: Ragnar Már Garðarsson
Fæddur: 1994
Meðlimur í GKG síðan 2005
Forgjöf í dag: +2,0
Skóli: University […]

Ný námskeið hefjast hjá Sigurpáli 19. júní

ATH. UPPSELT ER Á ÞESSI NÁMSKEIÐ

Framundan eru ný námskeið hjá Sigurpáli PGA kennara hjá GKG.

Námskeiðin eru opin öllum kylfingum en um er að ræða 4 skipti þar sem lögð er áhersla á góða tækni og góðar æfingar í púttum, vippum og glompu og sveiflu.

Tímasetningar í boði:

Námskeið mán 19.6 – 26.6 […]

Námskeið að hefjast í næstu viku hjá Sigurpáli

Í nóvember hefjast námskeið sem standa fram á vor, þar sem nemendur mæta á tveggja vikna fresti í markvissa kennslu. Þetta er frábær undirbúningur með gagnlegum og skemmtilegum æfingumsigurpall fyrir golfferðina í vor eða næsta golfsumar. Námskeiðin eru opin öllum, ekki bara […]

Verðlaunalisti í Minningarmótinu á morgun – enn hægt að skrá sig

Verðlaunalistinn í Minningarmótinu til styrktar íþróttastarfinu okkar er orðinn mjög glæsilegur. Enn er hægt að skrá sig í mótið og viljum við hvetja áhugasama um að taka þátt í þessu skemmtilega móti, og með því heiðra fallna félaga og styrkja starfið í leiðinni. Myndin sem fylgir fréttinni sýnir Íslandsmeistara í […]

Ný námskeið að hefjast hjá Hlöðveri 5.-8. september

Námskeiðin vinsælu hjá Hlöðveri halda áfram, og nú er hægt að skrá sig á námskeið sem hefjast í næstu viku, 5.-8. september. Námskeiðin henta breiðum hópi kylfinga, allt frá háforgjafarkylfingum til lengra komna. Námskeiðin eru opin öllum, ekki einungis félagsmönnum GKG. Hópastærð er takmörkuð við 5 manns þannig að hver […]

Ný námskeið að hefjast í næstu viku hjá Golfskóla GKG

Í næstu viku, 22.-25. ágúst, hefjast ný námskeið hjá Hlöðveri PGA kennara. Námskeiðin henta breiðum hópi kylfinga, allt frá háforgjafarkylfingum til lengra komna. Námskeiðin eru opin öllum, ekki einungis félagsmönnum GKG. Hópastærð er takmörkuð við 5 manns þannig að hver og einn fær persónulega nálgun.

Mikill sveigjanleiki er hvað varðar skráningu, en […]

Go to Top