Skráning hafin í einkakennslu hjá Birgi Leifi

Nú gefst þér einstakt tækifæri til að koma þér í form fyrir sumarið.

Birgir Leifur Hafþórsson, margfaldur Íslandsmeistari og PGA menntaður golfkennari ætlar samhliða keppnisgolfinu að bjóða upp á einkakennslu í Golfakademíu Birgis Leifs.

Birgir Leifur mun hjálpa þér að komast í form fyrir sumarið og gera með þér plan til þess […]

Flottur árangur hjá Hlyni á Junior Orange Bowl

Hlynur Bergsson, afrekskylfingur úr GKG tók þátt í Junior Orange Bowl mótinu sem er firnasterkt unglingamót haldið á Biltmore vellinum í Flórida núna milli jóla og nýárs. Einungis landsmeisturum og öðrum köppum sem sigrað hafa á sterkum mótum er boðin þátttaka.

Hlynur stóð sig gríðarlega vel og endaði í 18. sæti […]

Sigurður Arnar stóð sig vel á sterkum mótum um jólin

Sigurður Arnar Garðarsson, 14 ára kylfingur úr GKG, og einn sá allra efnilegasti á landinu, stóð sig feikivel í tveimur alþjóðlegum mótum sem hann tók þátt í í Flórída um jólin.

Sigurður tók þátt í ásamt Kristófer Karli Karlssyni úr GM á Doral-Publix Junior Golf mótinu sem fór fram í Flórída. […]

Námskeið að hefjast hjá Hlöðveri í janúar

Hlöðver Guðnason, PGA golfkennari og meðlimur í GKG verður með tvenns konar námskeið í Kórnum sem hefjast í vikunni 16. janúar.

Annars vegar hópnámskeið þar sem hámark 5 manns eru í hópi og lögð er áhersla á markvissa kennslu. Hins vegar æfinganámskeið (stöðvaþjálfun) þar sem fjöldinn er 8 manns og áhersla […]

GKG félagsferð á Thracian Cliffs 23.-30. apríl 2017

mynd_tc_2Næsta vor verður boðið upp á sérstaka GKG meðlimaferð til hins stórkostlega Thracian Cliffs golfvallar í Búlgaríu. Þessi völlur er hannaður af Gary Player og er mikið meistaraverk. GKG meðlimum gefst tækifæri á að upplifa þennan völl og frábæra GKG stemmningu rétt fyrir […]

Jólagjafir fyrir golfara fást í golfverslun GKG

Starfsfólk GKG er komið í jólaskap og býður upp á ýmis gjafabréf fyrir golfara í jólapakkann

Einkakennsla hjá PGA kennara GKG
30 mín kennslutími með Trackman, kr. 7.500 per skipti
30 mín kennslutími án Trackman, kr. 6.000 per skipti
Einstaklingsmiðuð kennsla.

Hópnámskeið hjá PGA kennara

4 x 1 klst. hjá PGA kennara, kr. 14.000
Hámark 5 manns […]

Jólatilboð í verslun GKG!

Við erum í jólastuði og ætlum því að gefa 30% afslátt af öllum ZO-ON vörum út desember.

Einnig bjóðum við upp á fría merkingu á Titleist boltum ef pantað er fyrir 11. desember. 
ATH:
Einungis ein leiturgerð, svart letur og hástafir. Íslenskir stafir í boði en ekki hægt að setja tákn. Hægt að hafa […]

Hlynur Bergsson hlaut Háttvísibikar GSÍ

Á aðalfundi GKG í gærkvöldi var Háttvísibikar GSÍ veittur í þriðja sinn.

Háttvísibikar GSÍ er veittur þeim unga kylfingi í GKG sem sýnt hefur góða frammistöðu utan vallar sem innan, og verið öðrum kylfingum til fyrirmyndar hvað varðar dugnað og háttvísi.

Bikarinn var veittur í GKG í fyrsta sinn 2014, og fékk […]

Aðalfundur GKG, Birgir Leifur á heiðursvegginn og Guðmundur Oddsson heiðursfélagi.

Á aðalfundi GKG sem haldinn var í Íþróttamiðstöð GKG þann 30. nóvember ákvað stjórn GKG að Birgir Leifur Hafþórsson færi fyrstur einstaklinga á heiðursvegg félagsins. Feril Birgis Leifs Hafþórssonar þekkja flestir kylfingar. Hann hefur um árabil verið okkar fremsti kylfingur, og er eini íslenski karlkylfingurinn sem hefur náð þátttökurétti á […]

Go to Top