Birgir Leifur heldur fyrirlestur um markmiðasetningu fyrir félagsmenn GKG

Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur heldur fyrirlestur fyrir GKG meðlimi þriðjudaginn 14. mars kl. 20 í Íþróttamiðstöðinni.

Birgir Leifur fer yfir hans nálgun á markmiðsetningu og hvernig hún nýtist hinum almenna kylfingi. Fyrirlesturinn er afar fróðlegur og gefur góða innsýn hvernig afreksíþróttafólk nálgast sín verkefni og markmið.

Það kostar einungis 1.000 kr. og […]

Námskeið hjá Hlöðveri að hefjast í næstu viku

Hlöðver Guðnason, PGA golfkennari og meðlimur í GKG verður með námskeið í Kórnum sem hefjast 15. mars. Annars vegar eru hópnámskeið þar sem hámark 5 manns eru í hópi og lögð er áhersla á markvissa kennslu.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit fyrir námskeiðin sem eru í boði, en skráningarupplýsingar má […]

Skíðagöngubraut í GKG tilbúin

Gönguskíða fólk athugið!
Forstöðumaður skíðasviðs GKG hefur verið á haus í dag að troða nýja braut og lagað þá gömlu.
Best er að byrja og geyma bílinn við Íþróttamiðstöðina okkar (ekki við áhaldahúsið).
Nýja brautin er um 2,6 km og inniheldur brekkur. Gamla brautin er um 2,1 km og er mun sléttari.
Það er […]

Sæti laus í GKG félagsferðina Thracian Cliffs 23.-30.apríl

Kæri GKG félagi
Enn eru sæti laus í GKG meðlimaferðina til hins stórkostlega Thracian Cliffs golfvallar í Búlgaríu. Þessi völlur er hannaður af Gary Player og er mikið meistaraverk. Einnig verður hægt að spila á Lighthouse og Black Sea Rama sem eru í 10 mínúta fjarlægð. Lighthouse völlurinn er hluti af […]

Þrettán kylfingar úr GKG valdir í Afrekshóp GSÍ

Jussi Pitkanen, afreksstjóri og landsliðsþjálfari Golfsambands Íslands, hefur valið þá kylfinga sem skipa munu afrekshópa GSÍ á árinu 2017. Alls sóttu 73 kylfingar um að fá að taka þátt í afreksstarfi GSÍ og eru hóparnir þannig skipaðir.
Nánari má lesa um valið á hópunum með því að smella hér:

Elite:
Bjarki […]

Valdís með fyrirlestur á brunch-degi GKG kvenna

Í gær var skemmtilegur viðburður á vegum kvennanefndar GKG þar sem 70 konur mættu og skemmtu sér vel yfir fjölbreyttri dagskrá.

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni sagði á skemmtilegan hátt í máli og myndum frá því hvernig hún hefur fikrað sig upp metorðastigann og komist á  LET mótaröðina. Leiðin hefur […]

Úrslit í N1 golfhermamótinu í GKG

Fyrsta mót ársins, N1 mótið, fór fram s.l. laugardag í Trackman hermunum í GKG og tóku 25 kylfingar þátt. 

Leiknar voru 9 holur, þ.e. holur 10-18 á Pebble Beach.

 

Keppnisfyrirkomulag var punktakeppni með grunnforgjöf leikmanns, hámark 36/2.

 

Verðlaun voru veitt fyrir þrjú efstu sætin.

1. sæti: Kennsla í Trackman 30 mín m. PGA kennara […]

Ný námskeið hjá Hlöðveri hefjast 15. febrúar

Hlöðver Guðnason, PGA golfkennari og meðlimur í GKG verður með námskeið í Kórnum sem hefjast 15. febrúar.

Annars vegar eru hópnámskeið þar sem hámark 5 manns eru í hópi og lögð er áhersla á markvissa kennslu. Hins vegar æfinganámskeið (stöðvaþjálfun) þar sem fjöldinn er 8 manns og áhersla á góðar æfingar.

Hér […]

Derrick valinn PGA kennari ársins 2016

Aðalfundur PGA á Íslandi, sem eru samtök atvinnukylfinga, fór fram s.l. laugardag hér í GKG.

Afreksþjálfari GKG, Derrick Moore, var útnefndur PGA kennari ársins fyrir árið 2016. PGA á Íslandi stóð fyrir kosningu meðal félagsmanna, þar sem Derrick var einn af fimm tilnefndum kennurum. Þetta er í þriðja sinn sem Derrick hlýtur þennan […]

Opnunartímar í Kórnum og Íþróttamiðstöð GKG

Viljum vekja athygli á opnunartímum okkar í æfingaaðstöðu GKG, þ.e. í Kórnum og Íþróttamiðstöðinni. Sjá myndrænt neðar í póstinum.

Íþróttamiðstöðin
Virka daga: húsið opnar 10:00 og lokar kl. 22:00
Æfingar barna/unglinga/afrekshópa eru frá kl 15-19 mán-fim en kl. 14-17 á föstudögum. Ekki er hægt að nota netin eða púttflötina meðan þessar æfingar eru […]

Go to Top