Kvennasveit GKG endaði í 5. sæti

Sveit GKG endaði í 5. sæti í Sveitakeppni GSÍ sem lauk á Hvaleyrarvelli í morgun. Þæer sigruðu sveit Nesklúbbsins NK 2-1 um 5. – 6. sætið. Í gær unnu okkar stelpur GSS frá Sauðárkróki.
Þetta er sami árangur og sveitin náði […]

By |13.08.2006|Categories: Fréttir almennt|

GKG sveitin vann GR 3-2

Sveit GKG sigraði sveit GR í 3 umferð sveitakeppninnar í golfi sem fram fer í Leiru.

Sveitin okkar er núna að spila við sveit GS um hvort liðið leikur um 1.-2. sætið eða 3.-4. sætið í lokaumferðinni á morgun.

Úrslitin í morgun má sjá hér að neðan

By |12.08.2006|Categories: Fréttir almennt|

Gríðarlega sterkar sveitir mætast

Það má segja að þar mætist stálinn stinn um 3 umferð sveitakeppninnar í golfi sem heldur áfram á morgun. Leikir morgundagsins skipta gríðarlega miklu máli upp á krosspil á milli riðla. Fyrsti leikur hefst klukkan 8:42.

Lið GKG og GR eru þannig skipuð:

By |11.08.2006|Categories: Fréttir almennt|

Töpuðu niður möguleikanum

 Kvennasveit GKG tapaði sínum öðrum leik á móti GR eftir hádegið í dag. Stelpurnar voru að spila vel framan af og átti fjórmenningurinn 3 upp eftir fyrri 9 holurnar og tvímenningarnir 2 niður hvor. Á seinni níu holunum var erfiðara hjá okkar […]

By |11.08.2006|Categories: Fréttir almennt|

Karlasveitin vann 3/2

Karlasveit GKG var rétt í þessu að leggja sveit GSE að velli 3-2. Mikil spenna var á lokamínútunum þar sem staðan var 2-2 og einmenningsleikur Sigmundar Einars fór í bráðabana sem Sigmundur vann á 23. holu.

Annars fóru leikirnir þannig:

Birgir Leifur Hafþórsson […]

By |11.08.2006|Categories: Fréttir almennt|

Basl á kvennasveitinni

Kvennasveit GKG sem leikur í Sveitakeppni GSí sem hófst á Hvaleyrarvelli í morgun er í basli með sveit GA. Í tvímenningum sveitarinnar er María Guðnadóttir 2 niður eftir 9 holur og Eygló Myrra Óskarsdóttir 2 niður einnig eftir 9 holur. Fjórmenningurinn sem […]

By |11.08.2006|Categories: Fréttir almennt|

Eygló Myrra sigraði á Faldo Series

Eygló Myrra Óskarsdóttir klúbbmeistari kvenna 2006 og stigameistari í unglingamótaröð KB banka í flokki 14 – 15 ára sigraði kvennaflokkinn á Faldo Series Iceland Championship sem fram fór á Korpúlfsstaðavelli nú í vikunni. Allar stelpurnar kepptu í einum flokki, yngri en 18 […]

By |10.08.2006|Categories: Fréttir almennt|

Bilun í boltavél

Önnur boltavélin á æfingasvæðinu er biluð og verður óstarfhæf næstu 2 – 3 dagana. Þetta er vélin sem les boltakort félagsmanna. Hin vélin er í lagi og mun taka "tokens" í þessa daga, en alla jafna tekur hún einungis peninga. Búið er að panta nýtt móðurborð í hana frá Range […]

By |08.08.2006|Categories: Fréttir almennt|
Go to Top