Nike Golf – Demo dagur
Miðvikudaginn 31. júlí verður Nike Golf og Intersport með Demo dag á æfingasvæði GKG frá 15:00-17:00
Komdu og prófaðu byltingarkenndu VR_S Covert línuna
Kylfumælingar fyrir áhugasama
Sjáumst Hress!
Miðvikudaginn 31. júlí verður Nike Golf og Intersport með Demo dag á æfingasvæði GKG frá 15:00-17:00
Komdu og prófaðu byltingarkenndu VR_S Covert línuna
Kylfumælingar fyrir áhugasama
Sjáumst Hress!
Birgir Leifur Hafþórsson varð í dag Íslandsmeistari í höggleik og er það í fimmta sinn sem hann hampar bikarnum. Birgir Leifur háði harða baráttu við Harald Franklín Magnús sem var með tveggja högga forystu fyrir loka daginn. Á 15. holu setti Birgir Leifur niður um 18 metra pútt fyrir fugli, […]
Stór hópur GKG kylfinga tekur þátt í Íslandsmótinu í höggleik, sem fer fram á Korpúlfsstaðavelli. Fyrsti hringur var leikinn í gær, en mótinu lýkur á sunnudag. Við hvetjum GKG félaga til að fjölmenna á völlinn og hvetja okkar kylfinga til dáða.
Hér má sjá skor okkar kylfinga eftir fyrsta hringinn, en […]
Þriðjudaginn 23. júlí var haldið 18 holu kvennamót á Leirdalnum. 60 GKG konur mættu með góða skapið í frábæru veðri.
Leikin var punktakeppni, verðlaun veitt fyrir efstu sex sætin, nándarverðlaun á 2., 4., 11. og 17 holu og fyrir lengsta upphafshögg á 1. braut.
Verðlaunahafar voru þessir:
1. sæti Hólmfríður Einarsdóttir 37 punktar
2. […]
Eftir rigningasumar þá er það fréttnæmt að loksins sjáist til sólar og að hitinn sé kominn í um 20 stig. Spáin næstu daga er mjög góð og þá er um að gera að njóta þess að leika vellina okkar, sem hafa líklega aldrei verið betri. Vinsamlegast gangið vel um og […]
Óðinn Þór Ríkharðsson, hélt utan í dag til keppni á European Young Masters mótinu, sem haldið verður á Hamburger Golf Club, eða Falkenstein eins og hann er oftast kallaður. Mótið hefst á fimmtudag og lýkur á laugardag. Um er að ræða gríðarlega sterkt mót, en fremstu kylfingar Evrópu […]
Um helgina fór fram fimmta mótið á tímabilinu í Íslandsbankamótaröð unglinga, og var leikið að þessu sinni hjá Golfklúbbi Akureyrar.
Okkar ungu kylfingar gerðu gott mót og náðust sigrar í þremur flokkum af sex, en einnig komust þrír aðrir á verðlaunapall. Særós Eva Óskarsdóttir og Bragi Aðalsteinsson náðu sínum fyrstu sigrum […]
Þriðja mótið í Mix mótaröðinni fór fram í gær, og luku 32 keppendur keppni. Aðstæður voru erfiðar, en það hellirigndi allan tímann. Keppendur létu það hinsvegar ekki á sig fá og kláruðu hringinn, flest með bros á vör. Hér fyrir neðan má sjá úrslit mótsins en heildarúrslitin verða send á […]
18 holu punktamótmót fyrir konur í GKG verður þriðjudaginn 23. júlí nk.
Spilaður verður Leirdalurinn og er hámarksforgjöf 36.
Skráning fer fram á golf.is.
Mótsgjald er kr. 1.500 og greiðist við upphaf móts með peningum eða með því að leggja inn á reikning kvennanefndar 0546-14-402420, kt. 220550-3979.
Verðlaun veitt fyrir […]
Í gær fór fram fjórða mótið af sex í V Sport mótaröðinni.
Hér fyrir neðan má sjá verðlaunahafana í mótinu í gær, flottur árangur hjá mörgum og forgjöfin heldur áfram að lækka.
Þökkum fyrir góða þátttöku og minnum á næsta mót sem fer fram 31. júlí, og sem fyrr lýkur skráningu tveimur […]