Hið árlega rauðvínskvöld GKG kvenna
Föstudaginn 10. maí í golfskála GKG.
Kvöldið hefst kl. 19 með fordrykk.
Verð kr. 3.100 með mat.
Tískusýning frá Hole in One
og Cross frá Altis.
Sverrir Bergmann & Halldór Gunnar
Fjallabróðir taka nokkra slagara.
Skráning í síma 565 7373.
Vallarfréttir 6 maí.
Vallarstjóri hefur í samráði við vallarnefnd ákveðið að opna Vífilsstaðarvöll laugardaginn 11. maí klukkan 8:00.
Reynt verður að opna allann völlinn þar að segja leirdalsvöll og mýrina. Kylfingar eru beðnir að ganga vel um völlinn og sína svæðinu virðingu þar sem það er viðkvæmt, muna að ganga frá kylfuförum og laga […]
Gerum fallegan völl enn fallegri!
Fegrunar- og snyrtiátak í apríl/maí 2013
Trjáræktarnefnd GKG vinnur að trjárækt á golfvöllunum og umhverfi þeirra í góðri og náinni samvinnu við vallarstjóra og vallarnefnd. Nefndin gerir árlega áætlanir um gróðursetningu og einnig tillögur til næstu þriggja ára og sendir vallarnefnd til afgreiðslu. Eftir þessum tillögum er svo […]
Lokaúrslit í púttmótaröð barna og unglinga
Í vetur hafa farið fram púttmót barna og unglinga í GKG annan hvern laugardag frá áramótum. Á laugardag fór fram seinasta púttmótið og mættu 36 ungir kylfingar til leiks. Í heildarkeppninni töldu 5 bestu hringirnir, og var mjótt á mununum í mörgum flokkum þegar upp var staðið.
Úrslit vinningssæta í öllum […]
Skráning hafin á sumaræfingar barna og unglinga
Sæl og blessuð.
Nú höfum við opnað fyrir skráningar á sumaræfingar barna og unglinga, en æfingar hefjast eftir að skólum lýkur, 10. júní. Til þess að geta tekið þátt í sumaræfingum GKG þarf að vera meðlimur í GKG og fylla út skráningarformið.
Allar upplýsingar, s.s. æfingatöflu, skipulag og markmið æfinga, og skráningarform […]
Úrslit í næst seinasta púttmótinu í vetur
Nú hafa 8 af 9 púttmótum vetrarins farið fram, og hér fyrir neðan má sjá besta árangur í hverjum flokki í mótinu s.l. laugardag. Einnig er hægt að skoða heildarúrslit með því að smella hér: Puttmotaroð_vetur_2013_stada_e_8_mot.
Við minnum síðan á seinasta púttmótið í mótaröðinni, en það fer fram laugardaginn 4. maí. […]
Að leigja eða eiga Golfbíl? – Ný þjónusta hjá GKG, ársleiga á golfbílum
Það kostar 4.800,- að leigja sér golfbíl á 18 holurnar. Það er í sjálfu sér ekki svo dýrt ef maður þarf stöku sinnum á bílnum að halda. Sumir einstaklingar geta þó ekki spilað golf nema þeir séu á bíl sökum meiðsla eða sjúkdóma. Ef slíkur einstaklingur spilar reglulega golf þá […]
Ferðasaga eftir æfingaferð á Hacienda del Alamo
Stefna Íþróttanefndar GKG undanfarin ár hefur verið að efna til æfingaferða Keppnis- og Afrekshópa, auk Meistaraflokka. Fyrstu árin fóru Meistarflokkar í æfingaferðir til St. Andrew´s í Skotlandi, tvö ár voru æfingaferðir farnar til nágrennis Lundúna á Englandi, en síðastliðin 6 ár hefurSpánn orðið fyrir valinu, enda meira öryggi varðandi veður, […]










