Slide

Íslandsmeistarar GKG fengu viðurkenningu frá Garðabæ

Vegna aðstæðna verður engin hefðbundin íþróttahátíð í Garðabæ og hefur ÍTG því heimsótt íþróttafélög bæjarins og afhent viðurkenningar fyrir Íslandsmeistaratitla á árinu.

Það var lágstemmd en góð stund sem við áttum í gær þegar Íslandsmeisturum GKG var afhent sínar viðurkenningar fyrir frábæran árangur á árinu.

Kjöri íþróttakarli og íþróttakonu Garðabæjar verður líst […]

Hvað segir GKG-ingurinn Ásta Kristín Valgarðsdóttir?

Kylfingur dagsins er öflugur formaður kvennanefndar GKG, Ásta Kristín Valgarðsdóttir. Hún er Garðbæingur út í gegn og á besta aldri, eða 51 árs. Kvennanefndarformaðurinn spilaði mikið í sumar og var í miklum upp- og niðurleik með forgjöfina sína. Hún var hins vegar ekkert að flækja hlutina þegar kom að holukeppninni […]

Vetraræfingar hefjast 4. janúar – skráning hafin í Nóra

Heil og sæl

Nú er búið að opna fyrir skráningar á vetraræfingar GKG og er farið í gegnum skráningarkerfið í Nóra, sjá hér: https://gkg.felog.is/. Ef um sérstakar óskir er að ræða varðandi almenna hópa þá er gott að taka það fram í athugsemdareitnum í skráningarferlinu.

Ef nota á frístundastyrk […]

Hvað segir GKG-ingurinn Hlöðver Sigurgeir Guðnason?

GKG-ingur dagsins er Seljahverfisbúinn (en umfram allt Eyjapeyji) Hlöðver eða Hlöbbi eins og við köllum hann flest. Hann fór úr því að vera hálfpartinn neyddur út í golfið um fimmtugt í að vera alger meistari í sportinu og ekki bara fyrir sig heldur líka okkur hin því hann er einn […]

Aðalfundur GKG fyrir starfsárið 2020

Aðalfundur GKG verður haldinn fimmtudaginn 26. nóvember kl 20:00. Í ljósi samkomubanns verður fundurinn með rafrænum hætti þetta árið, munum við senda ítarlegar leiðbeiningar í næstu viku.

Dagskrá fundarins er með eftirfarandi hætti.

  • Fundarstjóri og fundarritari kosnir.
  • Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.
  • Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til […]

Hvað segir GKG-ingurinn María Björk Pálsdóttir?

Við kynnum með stolti Íslandsmeistara í holukeppni 19 – 21 árs kvenna 2020,  Maríu Björk Pálsdóttur. Þessi flotti GKG-ingur er 19 ára Kópavogsbúi með 3,5 í forgjöf, er hluti af öflugum meistaraflokki klúbbsins og enn einn nestissnillingurinn okkar! 🙂

María Björk átti sitt besta tímabil til þessa og ljóst að vel […]

Hlynur stóð sig vel á Maridoe háskólamótinu

Landsliðskylfingurinn og klúbbmeistari GKG, Hlynur Bergsson, lauk keppni í gær á Maridoe Collegiate mótinu sem haldið var á Maridoe vellinum í Carrollton í Texas.

Mótið var gríðarlega sterkt en þarna léku fjórir sterkustu skólarnir samkvæmt stigalista NCAA háskólagolfsins (Pepperdine, Oklahoma, Texas Tech og Georgia Tech). Alls var 12 skólum boðið […]

Golfvellir loka!

Ágæti kylfingur. Samkvæmt fyrirmælum sóttvarnaryfirvalda hefur golfvellinum verið lokað til 19. október. Við biðjumst velvirðingar á þessum óþægindum og vonumst til þess að þú sýnir þessum aðstæðum skilning. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Golfsambands Íslands, golf.is.

Fólk sem átti bókaða rástíma í dag hefur verið afbókað.

Starfsfólk GKG

 

Við bregðumst við tilmælum sóttvarnalæknis

Kæru félagar,

Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu munum við loka eftirfarandi starfsemi hjá okkur næstu tvær vikurnar:

  • Skipulagðri íþróttastarfsemi
  • Golfhermum GKG
  • Verslun GKG
  • Útiæfingasvæði
  • Salernisaðstöðu á 12. braut

Völlurinn verður áfram opinn fyrir félagsmenn. Varðandi þann þátt, þá bendum við á tilmæli sóttvarnarlæknis um að hópar séu ekki að koma saman.

Með þessum […]

By |06.10.2020|Categories: Fréttir|

Úrslit Bændaglímunnar 2020 – Lið Venna Páer sigraði!

Kæru GKG félagar
Bændaglíma GKG fór fram í blíðskaparveðri í gær laugardaginn 3. október, það var leikið frábært golf og sýndu félagsmenn sínar bestu hliðar. Ásta Kristín sýndi tilþrif dagsins, gerði sér lítið fyrir og fór holu […]
Go to Top