Slide

Opnunarmótið hafið – stemmari í kvöld hjá GKG

Hann Atli Ágústsson sá mikli höfðingi sló fyrsta höggið á Leirdalsvellinum þetta árið, en hann er í fysta ráshópi Opnunarmótsins. Veðrið er með því besta sem gerist og ástand vallar með ágætum miðað við það kuldakast sem einkenndi vorið.

Í kvöld verður svo mikill stemmari hjá GKG. Í fyrsta sinn í […]

Félagsskírteini … tafir á afhendingu

Kæru félagsmenn, í ár munum við breyta félagsskírteinunum okkar þannig að þau verða jafnframt aðgangskort. Félagsmenn munu þurfa að nota þau til að skanna sig inn á völlinn og einn úr hollinu skannar hollið út af vellinum. Kortið mun líka virka sem aðgangskort að hurðum eins og til dæmis upp […]

Tiltektardagur á vallarsvæði GKG

Kæru félagar
Við ætlum að blása til tiltektardags á vellinum næstkomandi þriðjudag 3.maí klukkan 16:30. Helstu verkefni dagsins er að hreinsa allt rusl af vallarsvæðinu okkar en mikið af allskyns rusli hefur fokið á völlinn í vetrarlægðunum og því nauðsynlegt að taka til hendinni og hreinsa til.
Þeir sem sjá sér fært […]

Okkur vantar starfsfólk í nýja veitingastaðinn okkar Mulligan

Nýi vertinn okkar þau hjá Mulligan leita að duglegum og glaðværum einstaklingum í vinnu!

Okkur vantar fólk í sal og í eldhús, fullt starf og hlutastarf í boði. Umsækjendur skulu vera eldri en 20 ára og ekki verra að hafa reynslu í bransanum, þó ekki skilyrði. Skemmtilegt sumarstarf á frábærum vinnustað.

Smellið […]

Skráning hafin á sumaræfingar GKG

Sæl og blessuð.

Nú höfum við opnað fyrir skráningar á sumaræfingar barna og unglinga, en æfingar hefjast 13. júní.  Til þess að geta tekið þátt í sumaræfingum GKG þarf að vera meðlimur í GKG og fylla út skráningarformið.

Allar upplýsingar, s.s. æfingatöflu, skipulag og markmið æfinga, og skráningarform er að finna […]

Opnunarmót GKG

Opnunarmót GKG verður með glæsilegu sniði þetta árið. Mótið verður haldið laugardaginn 7. maí og verður sannkölluð veisla allan daginn sem endar með glæsilegri verðlaunahátíð um kvöldið.

Mótið er punktamót og verða verðalaun veitt fyrir efstu þrjú sætin. Fyrsta sæti fær 25 þúsund króna inneign hjá Wow air, annað sætið fær […]

Golfskóli GKG: Námskeið í maí hjá Hlöðveri PGA golfkennara

Kæru félagar.

Nú styttist í að vellirnir okkar opni og því upplagt að fá góðar leiðbeiningar til að njóta golfsins enn betur. Golfskóli GKG býður upp á mörg námskeið sem henta breiðum hópi kylfinga.  Hópastærð er takmörkuð við 5-6 manns þannig að hver og einn fær persónulega nálgun.

Hér fyrir neðan má sjá […]

Úrslit í næst seinasta púttmóti vetrarins

Áttunda og næst seinasta púttmót barna og unglinga lauk í gær í Íþróttamiðstöðinni og tóku 23 krakkar þátt í þetta sinn. Greinilegt er á skorum að nýja púttflötin er talsvert erfiðari en sú í Kórnum, enda mun meira landslag. Það er þó ljóst að þessi flöt mun hjálpa kylfingum að ná […]

Opnað fyrir skráningu í golherma GKG

Frá og með deginum í dag verður hægt að bóka tíma í golfhermum GKG. Stefnt er að því að hafa bókunarkerfi á netinu en þar til það verður tilbúið er hægt að bóka tíma í síma 565 7373.

Verð fyrir hálftíma fyrir kl. 15:00 á virkum dögum er kr. 1.500 fyrir […]

GKG fékk afhenta viðurkenningu Fyrirmyndarfélags ÍSÍ

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar fékk endurnýjun viðurkenningar félagsins sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ laugardaginn 9. apríl síðastliðinn.  Þann dag fékk félagið einnig afhenta nýja og glæsilega aðstöðu við Vífilsstaði í Garðabæ.  Það var Lárus Blöndal forseti ÍSÍ sem afhenti formanni félagsins Finni Sveinbjörnssyni viðurkenninguna.  Á myndinni eru frá vinstri þeir Lárus og Finnur ásamt […]

Go to Top