Slide

Við flytjum skrifstofurnar

Kæru félagar,

Í þessari viku munum við flytja skrifstofurnar okkar.

Búið er að aftengja síma og netlagnir þannig að við getum lítið sinnt almennum skrifstofustörfum á meðan. Endilega sendið okkur tölvupóst ef við getum liðsinnt ykkur.

Biðjumst velvirðingar á þessari […]

GKG iðkendur og aðstandendur komin heim úr æfingaferð

GKG iðkendur og aðstandendur þeirra eru komin heim úr velheppnaðri æfingaferð til Morgado í Portúgal þar sem hópurinn æfði og lék golf við frábærar aðstæður yfir páskana. Hópurinn hefur aldrei verið jafn stór, en alls tóku 100 manns þátt í ferðinni, 44 iðkendur, 4 þjálfarar, og 52 aðstandendur.

Ferðin er farin […]

Eva María fór holu í höggi í æfingaferð GKG!

12903784_10206110723667469_767177708_oEva María Gestsdóttir gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi í æfingaferð GKG á Morgado – Alamos vellinum í Portúgal. Eva náði draumahögginu á 3. holu og notaði hún 5-járn. Um var að ræða svokallað “basket” högg, […]

Sigurður sigraði á USKids móti í Flórída

Sigurður Arnar Garðarsson sigraði á USKids móti sem fór fram fyrir stuttu. Sigurður lék á 77 höggum.

Flosi Valgeir Jakobsson, einnig í GKG, lék sömuleiðis í mótinu og tryggði sér annað sætið, var á 84 höggum.

Sjá myndir hér.

Frábær árangur hjá okkar mönnum og óskum við þeim innilega til hamingju með […]

Siggi vert hættir hjá GKG

Nú fyrir helgi tilkynnti Siggi vert okkur að vegna persónulegra ástæðna muni hann ekki geta haldið áfram veitingarekstrinum hjá GKG. Þetta er mikill missir fyrir félagið. Siggi lyfti þessari þjónustu upp á allt annað plan þegar hann tók við á sínum tíma, þrátt fyrir aðstöðu sem var vægast sagt takmörkuð. […]

Kristófer Orri í öðru sæti í Flórída

Kristófer Orri Þórðarson, afrekskylfingur úr GKG, hafnaði í öðru sæti á unglingamóti sem fram fór á Saddlebrook vellinum rétt fyrir utan Tampa í Flórída. Kristófer lék hringina tvo í mótinu á 70 og 75 höggum, og deildi hann efsta sætinu með tveimur öðrum. Skera þurfti úr um úrslitin í bráðabana […]

Keppnishópar GKG í æfingaferð í Portúgal

IMG_3713Stór hópur keppniskylfinga úr GKG hélt til Morgado Golf Resort í Portúgal 19. mars og dvelur þar við æfingar og leik fram yfir páska. Alls eru 100 aðilar í ferðinni, þar af 44 kylfingar úr keppnishópum klúbbsins í ferðinni, […]

Go to Top