Slide

Ungir afrekskylfingar GKG á fullu í keppnisgolfi um jólin

Ungir GKG kylfingar nýta jólafríið heldur betur vel til að keppa í Flórída enda aðstæður frábærar, eða kannski aðeins of góðar, en 28-32° stiga hiti er um þessar mundir í Flórída.

Sigurður Arnar Garðarsson og systurnar Hulda Clara og Eva María Gestsdætur eru að keppa á Doral Publix mótinu í Miami, […]

Árgjald GKG – hægt að skipta niður í 10 greiðslur með kreditkorti – Nú bjóðum við félagsmönnum upp á heilsársþjónustu með glæsilegri inniaðstöðu!

Stjórn GKG hefur ákveðið árgjald í klúbbinn fyrir starfsárið 2016 sem hér segir:

FLOKKUR VERÐ
67 ára og eldri 64.000 kr.
Einstaklingar 25 ára til og með 66 ára 94.700 kr.
Einstaklingar 19 ára til og með 24 ára 47.350 kr.
Börn og unglingar 11 ára til og með 18 […]

Námskeið hjá Golfskóla GKG – tilvalin jólagjöf

GKG býður upp á vetrarnámskeið sem hefjast eftir áramót. Annars vegar hádegisnámskeið og helgarnámskeið þar sem er áhersla er lögð á kennslu og æfingar, og hins vegar æfingar á kvöldin í stærri hópum þar sem áhersla er lögð á stöðvaþjálfun en minni kennslu. Fjórir PGA kennarar á vegum GKG munu […]

Guðmundur Oddsson lætur af störfum, sæmdur gullmerki GSÍ

Guðmundur Oddsson, formaður GKG til 10 ára ákvað að gefa ekki aftur kost á sér í embætti á aðalfundi GKG sem haldinn var miðvikudaginn 2. desember í Smáranum.

Guðmundur getur verið stoltur af framgangi klúbbsins þann tíma sem hann hefur verið formaður. Gríðarlegar breytingar hafa átt sér stað. Völlurinn hefur tekið […]

Finnur nýr formaður

Á aðalfundir GKG sem haldinn var miðvikudaginn 2. desember var Finnur Sveinbjörnsson kosinn formaður klúbbsins. Hefur hann gegnt formannstöðu í byggingarnefnd GKG undanfarið ár og sinnt því embætti með stakri prýði.  Finnur hefur gegnt ýmsum stjórnunarstöðum í gegnum tíðina, nú síðast sem tímabundinn bankastjóri Arion banka þegar hann var stofnaður […]

Elísabet Ágústsdóttir hlaut Háttvísibikar GSÍ

Guðmundur Oddsson, fráfarandi formaður GKG, veitti Elísabetu Ágústsdóttur Háttvísibikar GSÍ, sem veittur er þeim unga kylfingi sem sýnt hefur góða frammistöðu utan vallar sem innan, og verið öðrum til fyrirmyndar hvað varðar dugnað og háttvísi.

Bikarinn var veittur í fyrsta sinn í fyrra, og fékk þá Aron Snær Júlíusson þessa miklu viðurkenningu.

Helstu […]

Aðalfundur GKG fyrir starfsárið 2015

Aðalfundur GKG fyrir starfsárið 2015 verður haldinn í félagsheimili Breiðabliks, Smáranum, Dalsmára 5, miðvikudaginn 2. desember kl. 20:00.

Dagskrá fundarins verður þannig, skv. 10. gr. laga GKG:

  1. Fundarstjóri og fundarritari kosnir.
  2. Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.
  3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykkis.
  4. Rekstrar- og fjárfestingaáætlun komandi starfsárs kynnt.
  5. Lagabreytingar og aðrar tillögur […]

Skemmtilegt viðtal við Ragnar Má og Harald Franklin sem spila háskólagolf í Louisiana

Ragnar Már Garðarsson úr GKG og Haraldur Franklin Magnús úr GR stunda nám og leika keppnisgolf með University of Louisiana í bænum Lafayette, þar sem aðstæður eru afar góðar til golfleiks.

Skólafélagar þeirra útbjuggu skemmtilegt myndband þar sem okkar menn ræða um á léttum nótum menningarlegan mun á Íslandi og Louisiana […]

Leiga í golfhermi GKG í Kórnum

Kæru félagar.

GKG tekur í notkun 4 golfherma í nýju íþróttamiðstöðinni þegar hún verður tilbúin. Ekki er hægt að tímasetja opnunina nákvæmlega að svo stöddu.

Við höfum hinsvegar sett upp E6/Trackman golfhermi að fullkomnustu gerð í Kórnum, og gefst félagsmönnum tækifæri á að leigja tíma frá og með næstu helgi og þangað […]

Birgir er úr leik á lokaúrtökumótinu á Spáni

Birgir Leifur Hafþórsson, úr GKG, er úr leik á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Hann lék fjórða hringinn á -2 eða 68 höggum en það dugði ekki til og endaði hann á +3 samtals (74-72-73-68). Þeir kylfingar sem náðu að vera í einu af 70 efstu sætunum leika tvo […]

Go to Top